Föstudagur 6. júní
Fasteignaleitin
Skráð 28. maí 2025
Deila eign
Deila

Furugrund 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
80.8 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
68.900.000 kr.
Fermetraverð
852.723 kr./m2
Fasteignamat
62.350.000 kr.
Brunabótamat
43.150.000 kr.
Mynd af Elka Guðmundsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1984
Þvottahús
Garður
Útsýni
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2512764
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upphaflegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Ekki vitað um vandamál
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Norðursvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
6 - Fullgerð án lóðarfrágangs
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á aðalfundi var stjórn falið að athuga með að setja „anti-slip“ lag á göngustíg við sameign sem hefur verið of vel pússaður. Áætlaður kostnaður við það er um 300.000-400.000 kr. Stjórn var einnig falið að afla tilboða í rafhleðslustöðvar sem verða svo kynnt á öðrum húsfundi til ákvarðanatöku. Það stendur til að mála gula línu meðfram eyjunni á bílastæðinu til þess að fólk átti sig á því að það megi ekki leggja þar.  Heildarstaða framkvæmdasjóðs: ☒ inneign kr. 1.148.292 Heildarstaða hússjóðs: ☒ inneign kr. 653.632
Elka lgf. s. 863-8813 og Fasteignasalan TORG kynna nýlega, vandaða og rúmgóða 2ja herbergja íbúð með sérinngangi á þessum eftirsótta og rótgróna stað við Furugrund 3 við náttúruparadísina Fossvogsdalinn Kópavogsmegin.  Íbúðin er laus fljótlega -  Næg bílastæði!
Fallegar innréttingar frá Axis með miklu skápaplássi, harðplankaparket og flísar frá Agli Árnasyni, AEG eldhústæki og innbyggður ísskápur með frysti og uppþvottavél fylgir með. Lofthæð er aukin.
Íbúðin er á efstu hæð með fallegu útsýni (íbúð nr. 305).  Birt heildarstærð eignar er 80,8 m², þar af er skráð sérgeymsla í sameign 2,7 m².  Á lóð er útigeymsla sem er ekki inní fermetratölu.
Gullfalleg og rúmgóð íbúð á þessum vinsæla stað í Kópavogi.  Húsgögn gætu fylgt skv. samkomulagi.
Allar nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða elka@fstorg.is

Nánari lýsing:
Forstofa: Innri forstofa með glerrými, glerhurð inní íbúðina, flísar eru á gólfi.
Eldhús: Sérsmíðuð og vönduð innrétting frá Axis með miklu skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél, ísskáp með frysti  ásamt bakarofni í vinnuhæð, spanhelluborði og viftu frá AEG.
Stofa / borðstofa: Rúmgott og bjart rými sem er opið við eldhús. Á milli eldhúss og svefnherbergis er skrifstofurými.
Svefnherbergi: Bjart með rennihurð inní herbergið, útgengi á rúmgóðar svalir til norðurs. Skápar fyrir herbergi eru rúmgóðir fram á gangi.
Baðherbergi: Sérsmíðuð og vönduð innrétting frá Axis með góðu skápaplássi. Salerni er upphengt, handklæðaofn og stór sturta með glerskilrúmi. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu.
Geymsla: Sérgeymsla er í sameign hússins. Hverjar þrjár íbúðir deila með sér læstri hjóla- og vagnageymslu sem er skráð 6,3 fm
Gólfefni: Öll íbúðin fyrir utan baðherbergi  og forstofu er með fallegu eikarplanka harðviðarparketi frá Agli Árnasyni.
Íbúðin er á þriðju og efstu hæð (2. hæð frá götu) með svalir sunnanmegin og norðanmegin með miklu útsýni.  Á lóðinni eru 24 bílastæði fyrir eignirnar og þar af eru 4 fyrir hreyfihamlaða.
Húsið var endurbyggt frá grunni og afhent nýjum eigendum 2021.  Allir milliveggir eru hlaðnir úr vikri og pússaðir. Húsið er að stærstum hluta álkætt og lóðin fallega frágengin með grjóti og harðviðarveröndum á neðri hæð. Allur frágangur og efnisval er vandað og samrýmt.  Húsið er staðsett í veðursælu hverfi  þar sem stutt er í leik og grunnskóla, íþróttamiðstöðina HK, verslanir og veitingastaði.
Íbúðin er laus fljótlega eftir undirritun kaupsamnings
Allar nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða elka@fstorg.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/01/202243.250.000 kr.53.900.000 kr.80.8 m2667.079 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Trönuhjalli 7
Skoða eignina Trönuhjalli 7
Trönuhjalli 7
200 Kópavogur
82.6 m2
Fjölbýlishús
312
822 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Nýbýlavegur 72
3D Sýn
Skoða eignina Nýbýlavegur 72
Nýbýlavegur 72
200 Kópavogur
86.1 m2
Fjölbýlishús
312
812 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarhjalli 76
Hlíðarhjalli 76
200 Kópavogur
93.8 m2
Fjölbýlishús
312
762 þ.kr./m2
71.500.000 kr.
Skoða eignina Fannborg 5
Skoða eignina Fannborg 5
Fannborg 5
200 Kópavogur
87.2 m2
Fjölbýlishús
312
756 þ.kr./m2
65.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin