ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina að Háseylu 35 í Reykjanesbæ, rúmgott sex herbergja einbýlishús á einni hæð með bílskúr og aukaíbúð. Eignin er samtals 257,1 fm samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands og stendur á fjölskylduvænum stað þar sem leikskóli og grunnskóli eru í göngufæri.
Samkvæmt Þjóðskrá skiptist eignin í 166,4 fm íbúðarhúsnæði, 60,4 fm bílskúr og 30,3 fm íbúð með sérinngangi aftan við bílskúr. Aukaíbúðin býður upp á góða útleigumöguleika eða fjölbreytta nýtingu eftir þörfum nýrra eigenda.
Skipulag eignarinnar er forstofa, eldhús, stofa og borðstofa, baðherbergi, hol, fjögur svefnherbergi, þvottahús, bílskúr og aukaíbúð.
Eignin hefur fengið gott viðhald á síðustu árum. Skipt hefur verið um þakjárn, þakkanta og rennur auk þess sem hluti glugga hefur verið endurnýjaður. Árið 2021 var húsið pússað og málað að utan, nýr bílskúr ásamt aukaíbúð byggður og bílaplan fullfrágengið.Nánari upplýsingar veita:
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5521, tölvupóstur elin@allt.isJóna Björg Jónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5506, tölvupóstur jona@allt.isNánari lýsing eignar:
Forstofa er flísalögð með hvítum fataskáp og þaðan er aðgengi að einu svefnherbergi.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu og harðparketi á gólfi.
Stofa og borðstofa eru í björtu og opnu rými með útgengi út á stóran sólpall. Hol tengir saman alrými og svefnherbergisálmu eignarinnar og er flísalagt.
Baðherbergi er með upphengdu salerni, sturtu og góðri innréttingu ásamt flísum á gólfi og við sturtusvæði.
Svefnherbergin eru fjögur talsins, þar af rúmgott hjónaherbergi með fataskáp, öll herbergin eru með harðparketi.
Þvottahús er með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúrinn er rúmgóður með vinnuborði, skolvaski og sjálfvirkum hurðaopnara. Aftan við bílskúrinn er aukaíbúð með sérinngangi.
Við húsið er stór og skjólgóður sólpallur með heitum potti og kaldri útigeymslu. Fyrir framan húsið er steypt bílaplan og hellulagt aðgengi.
Um er að ræða vel skipulagða og fjölskylduvæna eign á vinsælum stað í Reykjanesbæ með fjölbreyttum nýtingarmöguleikum og góðum útleigu möguleikum.Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.