ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilega 4 herbergja endaíbúð í raðhúsi við Fagurhóll 22, 245 Sandgerði. Birt stærð 102.1 fm. Eignin hefur einstakt hafútsýni, 3 svefnherbergi, baðherbergi, opið eldhús með eyju, rúmgóða stofu, geymslu, sólpall, heitan pott og kaldann. Einstaklega falleg íbúð í rólegum botnlanga steinsnar frá skólum og íþróttamannvirkjum.Nánari upplýsingar veitir/veita:
Elín Frímanns Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.
*** Sérsmíðaðar innréttingar í öllum rýmum
*** Kvarts steinn á eldhúsi
*** Upptekin loft.
*** 3 svefnherbergi.
*** Gólfhiti er í húsinu.
*** Sólpallur út frá stofu með heitum og köldum pottum.
*** Aðeins 40 mín frá höfuðborgarsvæðinu.Lýsing eignar:Komið er inn í flísalagða forstofu.
Geymsla er þar á hægri hönd sem upphaflega var teiknuð sem þvottahús, tengingar bakvið skáp eru enn til staðar.
Baðherbergið er með flísum í hólf og gólf, góðri sésmíðaðri innréttingu, upphengdu salerni, sérsmíðuð innrétting fyrir þvottavél og þurrkara á baði, vélræn loftræsting í lofti.
Eldhúsið er með sérsmíðaðri innréttingu og kvarts steinplötu. Hellurborð á stórri eyju og stílhreinn háfur þar fyrir ofan, innbyggð tæki ísskáp og uppþvottavél.
Stofan er opin og björt með innfelldri lýsingu, útgengt á lokaðan afgirtan suð-vestur sólpall með heitum og köldum pottum. Fullkomin hitastýring á pottana í geymslu.
Hjónaherbergið er rúmgott með parket á gólfi og sérsmíðuðum skápum.
Barnaherbergin tvö eru rúmgóð með harðparketi sérsmíðuðum fataskáp í öðru þeirra.
Skemmtileg og björt íbúð og einstaklega vel staðsett innan bæjarfélagsins. Húsið var byggt 2021 úr timbureiningum á staðsteyptum sökkli. Húsið uppfyllir kröfur um algilda hönnun og er í samræmi við byggingarreglugerð 112/2012. Gólfhitakerfi er lagt á járngrind í miðja steypta plötu.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.