Þriðjudagur 14. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 14. júlí 2026

Langanesvegur 11

EinbýlishúsNorðurland/Þórshöfn-680
228 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
43.500.000 kr.
Fermetraverð
190.789 kr./m2
Brunabótamat
103.050.000 kr.
Margir Inng.
Fasteignanúmer
21678512
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Margir inngangar

Fasteignasala Þórshafnar kynnir:


 

Langanesvegur 11 
"Emilshús" er 165 fm einbýlishús á einni hæð, byggt árið 1944 úr steinsteypu, ásamt 63 fm  steinsteyptum bílskúr, byggðum 1983, samtals er eignin 228 fm. Elsti hluti hússins er með valmaþaki en viðbygging (byggð 1971) til vesturs og bílskúr eru með tvíhalla þaki. 
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu/þvottahús, flísalagt  með hita í gólfi, nýleg stór  Brúnás innrétting á þrem veggjum. Inn af þvottahúsi er hita/lagnakompa. Úr þvottahúsi er gengið inn á gang, við ganginn eru dyr að baðherbergi, stofu/borðstofu og eldhúsi. Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og veggjum, vegghengt salerni, baðkar og nýleg innrétting, hiti í baðgólfi. Við enda gangs er gengið inn í stofu, úr samliggjandi borðstofu eru dyr með rennihurð að eldhúsi. Parket á og hiti í eldhúsgólfi, gömul máluð innrétting er komin á tíma. Úr eldhúsi er gengið inn á  L-laga svefnherbergjagang, við hann eru fjögur svefnherbergi og útidyr sem snúa að palli milli húss og bílskúrs. Stórt hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp og svaladyr í átt að Bakkavegi.
Við hlið hjónaherbergis er lítið barnaherbergi, nýtt sem skrifstofa, tvö stærri barnaherbergi með fataskápum eru á móti hjónaherbergi.
Parket er á gólfum allra rýma í húsinu nema á baðherbergi og þvottahúsi sem eru flísalögð. Húsið er hitað með rafmagni, gólfhita og þilofnum.               Bílskúr er skipt að endilöngu með léttum millivegg, máluð gólf, gamlir gluggar sem virðast í þokkalegu lagi, tvennar útidyr og bílskúrðshurð líka gamlar. Milli bílskúrs og húss er u.þ.b. 60 fm verönd úr timbri ásamt c.a. 30 fm. steyptri stétt. Steypt bílastæði frá skúr að götu.
Helstu endurbætur síðustu ár: 2009-2011 er skipt um þakjárn og þakkant, glugga og útihurðar ásamt loftaefni innandyra og vatnslagnir að baðherbergi og þvottahúsi. Baðherbergi og þvottahús endurnýjuð á sama tíma ásamt gólfefnum og innihurðum í eldri hluta hússins. Byggður sólpallur og steypt stétt milli húss og bílskúrs.  2016 eru innihurðar og gólfefni á yngri hluta endurnýjuð og settir nýjir skápar í svefnherbergi. 2019 eru útveggir viðgerðir og húsið málað, lóð endurbætt og þökulögð. 2022 er þakjárn og þakkantur á bílskúr endurnýjað.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður í síma 8592925 eða tölvupósti srk66@simnet.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Þórshafnar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignasala Þórshafnar slf.
fasteignir.is

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lofnarbrunnur 28
IMG_1592.JPG
Skoða eignina Lofnarbrunnur 28
Lofnarbrunnur 28
113 Reykjavík
213.8 m2
Raðhús
423
758 þ.kr./m2
162.000.000 kr.
Skoða eignina Stekkholt 20
Bílskúr
Skoða eignina Stekkholt 20
Stekkholt 20
750 Fáskrúðsfjörður
238.5 m2
Einbýlishús
624
324 þ.kr./m2
77.300.000 kr.
Skoða eignina Brekkuland 8
Bílskúr
Skoða eignina Brekkuland 8
Brekkuland 8
270 Mosfellsbær
232.5 m2
Einbýlishús
715
686 þ.kr./m2
159.500.000 kr.
Skoða eignina Ásbúð 43
Skoða eignina Ásbúð 43
Ásbúð 43
210 Garðabær
220.6 m2
Raðhús
725
816 þ.kr./m2
179.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin