Afar falleg og björt 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í þríbýlishúsi með bílskúr sem breytt hefur verið í fallega stúdíóíbúð. Eignin er á eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur með sérlega fallegu sjávarútsýni úr stofu ásamt útsýni úr eldhúsi yfir Esjuna.
** 2 svefnherbergi
** Bílskúr hefur verið breytt í stúdíóíbúð
** Glæsilegt útsýni
** Frábær staðsetningNánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 115,3m2, þar af bílskúr 32m2.
Eignin skiptist í hol, eldhús, stofu/borðstofu, baðherbergi, 2 svefnherbergi og bílskúr sem búið er að breyta í stúdíóíbúð.
Nánari lýsing:
Stigapallur er með fatahengi. Teppi á gólfi.
Hol tengir saman öll rými íbúðar. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með góðum gluggum. Magnað útsýni út á haf, Bessastaði, Reykjanesið og Keili. Útgengt út á suðvestur svalir. Parket á gólfi.
Eldhús hefur verið endurnýjað með hvítri innréttingu, bakaraofni, helluborði. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara. Glæsilegt útsýni út á Esjuna úr eldhúsinu. Parket á gólfi.
Baðherbergi er með góðri hvítri innréttingu, upphengdu klósetti, baðkari og handklæðaofni ásamt vatnsheldri klæðningu. Flot á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskáp og útbúið hefur verið lítið fataherbergi. Fallegt sjávarútsýni. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er mjög rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Bílskúr/stúdíóíbúð 32m2 var uppgerður sem stúdíóíbúð árið 2019. Björt og góð stúdíóíbúð með 4 stórum gluggum sem snúa út í garð. Opið alrými með eldhúsi, stofurými og svefnaðstöðu. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu með sturtugleri, upphengdu klósetti, handklæðaofn ásamt baðinnréttingu með skápum, vask og spegli með innfelldri lýsingu.
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús.
Innra skipulagi hefur verið breytt frá upprunalegum teikningum.
Sörlaskjól 64, íbúð merkt 0201, er sérlega falleg og vel skipulögð útsýnisíbúð á vinsælum stað við sjávarsíðuna í Vesturbæ Reykjavíkur. Stutt er í skóla á öllum stigum, þjónustu og verslun ásamt fallegum göngu- og hjólaleiðum.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.