Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala kynnir glæsilega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja útsýnisíbúð á efstu hæð í lyftuhúsi í miðbæ Hafnarfjarðar. Stórar svalir í 3 áttir og fallegt útsýni. Skráð flatarmál er 100,1 fm. íbúð 79,4 og geymslurými 20,7.
Um er að ræða endaíbúð með sérinngangi af svölum. Allt húsið var endurgert 2018
Bætt var við 4. hæðinni ofan á húsið þar sem viðkomandi íbúð er.
Flotuð gólf með gólfhita í öllum rýmum íbúðarinnar.
Smelltu hér til að skoða eignina í þrívídd
Nánari lýsing: Forstofa, hol, stofa, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er sér rúmgóð geymsla og sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla.
Forstofa: Gengið er inn í forstofu með ljósum fataskáp.
Hol: Frá forstofu er gengið í hol með góðum upphengdum fataskáp.
Svefnherbergi I: Út frá holi er gengið í bjart svefnherbergi með fataskáp.
Eldhús: Eldhúsið er opið inn í stofu. Algjörlega endurnýjaðri með dökkri innréttingu og eyju með helluborði/ofni. Fallegt útsýni úr eldhúsi.
Stofan/borðstofa: Stofan er björt og falleg með og útgengi út á stórar útsýnissvalir.
Svefnherbergi II: Út frá stofu er mjög rúmgott herbergi með fataskáp. Hægt er að ganga í herbergið frá tveimur stöðum.
Baðherbergi: Baðherbergið með “labb-inn” sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Geymsla: Í sameign í kjallara er sér 20,7m2 geymsla sem fylgir íbúðinni.
Sameign: Í sameign er sameiginlegt þvottahús og hjóla- og vagnageymsla.
Frábært tækifæri til að eignast mikið endurnýjaða útsýnisíbúð á 4 hæð í miðbæ Hafnarfjarðar. Stutt er í alla þjónustu, verslarnir, skóla og leikskóla. Eign sem vert er að skoða.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
12/08/2020 | 45.400.000 kr. | 58.200.000 kr. | 100.1 m2 | 581.418 kr. | Já |
04/01/2019 | 17.100.000 kr. | 57.500.000 kr. | 100.1 m2 | 574.425 kr. | Já |
30/03/2017 | 13.250.000 kr. | 57.000.000 kr. | 100.1 m2 | 569.430 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
220 | 131 | 86,5 | ||
220 | 107.5 | 87,9 | ||
220 | 139.5 | 88,9 | ||
220 | 119.2 | 83,9 | ||
220 | 110.9 | 84,9 |