Gimli fasteignasala og Bárður H Tryggvason sölustjóri kynna: Norðurbakki 9, 220 Hafnarfjörður.
Íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.
Mjög falleg og rúmgóð 3ja herbergja 110,9 fm íbúð á 1 hæð í glæsilegu lyftuhúsi við Norðurbakka 9 B í Hafnarfirði. Íbúðin er mjög vel skipulögð, merkt bílastæði með rafhleðslustöð er í bílahúsi, á eftir að tengja það. Þvottahús er innan íbúðar og rúmgóð sérgeymsla í kjallara.
Íbúðin er skráð 98,4 fm og geymslan 12.5 skv birtri stærð hjá Fasteignamati ríkisins, samtals 110,9 fm.
NÁNARI LÝSING.
Kynnum í einkasölu fallega og rúmgóða þriggja herbergja íbúð á 1 hæð og á eftirsóttum stað í vönduðu lyftuhúsi ásamt stæði í lokuðu bílahúsi.
Húsið er lyftuhús á frábærum stað við hofnina og miðbæinn í Hafnarfirði.
Húsið er klætt að utan.
Göngufæri í verslanir og alla þjónustu.Skipulag íbúðar.Forstofa flísalögð með skáp.
Flísalagt baðherbergi með innréttingu og góðri sturtu.
Þvottahús er innaf baðherbergi og lokað af með rennihurð, flísalagt gólf og skápur.
Stofan er sérlega rúmgóð og nær í gegnum húsið með eldhúsið í miðjunni.
Vönduð hvít innrétting í eldhús með 2 ofnum. Uppþvottavél fylgir.
Útgengi á vestursvalir úr stofunni. Einnig er útgengi úr austurenda stofunnar út í garðinn.
Mjög rúmgott hjónaherbergi með skáp.
Barnaherbergi með skáp.
Harðparket á gólfum.
Sérmerkt bílastæði með rafhleðslustöð í bílakjallaranum.
Hjóla og vagnageymsla í sameign.
Niðurlag: Húsið stendur á góðum stað þar sem gamla höfnin var, í göngufæri við miðbæinn, alla verslun og þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir: Bárður H Tryggvason sölustjóri, í síma 8965221, tölvupóstur bardur@gimli.is eða gimli@gimli.isGimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.