Fimmtudagur 19. september
Fasteignaleitin
Opið hús:25. sept. kl 17:30-18:00
Skráð 18. sept. 2024
Deila eign
Deila

Hringbraut 119

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
51.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
56.900.000 kr.
Fermetraverð
1.109.162 kr./m2
Fasteignamat
42.300.000 kr.
Brunabótamat
27.800.000 kr.
Mynd af Ragnar Kristján Guðmundsson
Ragnar Kristján Guðmundsson
Fasteignasali
Byggt 1984
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2024696
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
5
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
6
Vatnslagnir
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Raflagnir
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Frárennslislagnir
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Þak
Ekki vitað / Þarfnast skoðunar
Svalir
Svalir frá stofu/borðstofu
Upphitun
Ofnar
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Ragnar Guðmundsson S: 844-6516 löggiltur fasteignasali hjá TORG fasteignasölu kynnir: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á fimmtu og efstu hæð í lyftuhúsi að Hringbraut 119 í vesturbænum. Íbúðin er á tveimur hæðum og þar sem stór hluti er undir súð er gólfflötur talsvert stærri en uppgefin fermetratala. Íbúðin skiptist í anddyri/hol, eldhús, alrými sem rúmar bæði stofu og borðstofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu og rúmgóða efri hæð sem rúmar svefnherbergisloft. Frá stofu er útgengt á svalir með skemmtilegu útsýni. Stór nýmáluð sérgeymsla með hillum og mikilli lofthæð er staðsett á jarðhæð sameignar ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma: 844-6516 eða á ragnar@fstorg.is

Viðhald íbúðar og sameignar:
Að sögn eiganda hafa miklar viðgerðir hafa átt sér stað á húsinu að utan sem og innan. Íbúðin var mikið endurnýjuð sumarið 2024. Íbúðin var máluð, skipt var um gólfefni, baðherbergi mikið endurnýjað, eldhús uppgert með nýjum eldhústækjum ásamt því að unnið var í rafmagni íbúðar. Verið er að ljúka við viðgerðir á múr og málningu utandyra ásamt málningarvinnu á svölum fjölbýlishússins. Verið er að leggja lokahönd á að skipta út teppum á göngum sameignar ásamt málningarvinnu innan sameignar. Sú viðgerð er fullgreidd af seljendum

Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Anddyri:
 Gengið er inn í nýmálað anddyri með hvítum innbyggðum forstofuskáp. Nýtt harðparket flæðir yfir öll rými íbúðar nema baðherbergi. 
Eldhús: Eldhúsið er nýmálað með nýlakkaðri innréttingu, nýrri hillu, nýlakkaðri borðplötu, nýrri eldavél, uppþvottavél og nýlegum ísskáp. 
Stofa/borðstofa: Bæði stofan og borðstofan eru rúmgóðar, nýmálaðar og bjartar í samliggjandi rými með harðparketi á gólfi. Frá stofu er útgengt á nýmálaðar svalir með skemmtilegu útsýni.
Baðherbergi: Nýlega var baðherbergið mikið endurnýjað. Það var málað, gólfið flotað og lakkað, sett var upp hvít innrétting með ljúflokun, ný handlaug, nýir skápar og nýtt klósett. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara.
Efri hæð:
Svefnherbergi:
 Frá stofu er stigi á rúmgóða efri hæð sem núverandi eigendur hagnýta sem svefnherbergisloft. Hæðin er nýmáluð með nýju parketi. Búin innbyggðum fataskáp. Stórir gluggar með opnanlegu fagi birta upp hæðina. Svefnherbergisloftið er talsvert undir súð og því virkar rýmið stærra en opinberar skráningartölur segja til um.
Geymsla: Í kjallara sameignar er rúmgóð og mikil sérgeymsla með mikilli lofthæð og hillum. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign. Í bílakjallara er svæði sem eigendur hafa hagnýtt sem sameiginlega bílaþvottaaðstöðu.

Hér er um að ræða fallega, vel skipulagða og mikið uppgerða eign á vinsælum stað í vesturbæ Reykjavíkur. Skemmtileg staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir þá sem vilja vera nálægt bæjarlífi miðbæjarins. Nálægð við góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði borgarinnar. Einnig er stutt er alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir meðfram sjávarsíðunni.
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnar Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma: 844-6516 eða ragnar@fstorg.is

Fáðu frítt söluverðmat fyrir eignina þína hér.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/04/202442.300.000 kr.45.800.000 kr.51.3 m2892.787 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Mýrargata 37
Skoða eignina Mýrargata 37
Mýrargata 37
101 Reykjavík
48.9 m2
Fjölbýlishús
211
1164 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Skoða eignina Nýlendugata 6
Skoða eignina Nýlendugata 6
Nýlendugata 6
101 Reykjavík
58.6 m2
Fjölbýlishús
211
937 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Hofsvallagata 17
Skoða eignina Hofsvallagata 17
Hofsvallagata 17
101 Reykjavík
65.1 m2
Fjölbýlishús
211
843 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Bragagata 29
Skoða eignina Bragagata 29
Bragagata 29
101 Reykjavík
59 m2
Fjölbýlishús
312
964 þ.kr./m2
56.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin