Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Hverfisgötu 82, íbúð 401, 101 Reykjavík:Um er að ræða bjarta 2ja herbergja útsýnisíbúð á 4. hæð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi í miðbæ Reykjavíkur. Frábært útsýni í norður í átt að Esjunni.
Birt stærð eignar er 49,7 fm og að auki er sérgeymsla á hæðinni. Húsið er byggt árið 1960 og er teiknað af Sigvalda Thordarson arkitekt. Húsið hefur að sögn eiganda fengið gott viðhald m.a. er nýlega búið að skipta um þakjárn, glugga, múrviðgerðir og málað að utan.
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXÍbúðin skiptist í forstofu, stofu / svefnherbergi, eldhús, baðherbergi (þvottaaðstaða) og geymslu (er staðsett á sömu hæð).
Nánari lýsing:Forstofa: Komið er inn í forstofu með fatahengi, parketi á gólfi.
Stofan / svefnherbergi: Rúmgóð, fataskápur, parket á gólfi. Búið er að sameina stofu og svefnherbergi í eitt rými. Eldhús og stofa eru í opnu rými með stórri gluggaröða í austur og gluggum í norður með fallegu útsýni yfir Esjuna.
Eldhús: Eldhús nýrri hvítri innréttingu, bakaraofn, keramikhelluborð, parket á gólfi.
Baðherbergi: Inn af forstofu, með innréttingu, sturta, tengi fyrir þvottavél, flísar á gólfi og inn í sturtu.
Geymsla: Rúmgóð geymsla sem staðsett er á hæð utan við íbúð.
Sameign: Á fyrstu hæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Sameiginlegar svalir til suðurs eru frá stigagangi.
Lóð: Sameiginleg 232 fm eignarlóð.
Staðsetning: Smellið hér. Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi: ** Nýlegt parket.
* Múrviðgerðir og málað að utan 2023.
* Nýir gluggar 2023.
* Ný eldhúsinnrétting og tæki 2023.
* Nýtt járn á þakið 2022.
Frábærlega vel staðsett eign með fallegu útsýni í hjarta borgarinnar. Stutt er í marga bestu veitingastaðir borgarinnar, í verslanir (Bónus í næsta húsi), skóla og alla almenn þjónustu. Gegnt húsinu er Vitatorg bílastæðahús og möguleiki er fyrir íbúa að fá bílastæðakort/íbúakort Reykjavíkurborgar gegn lágri greiðslu. Stutt er fallegar göngu- og hjólaleiðir við sundin við Sæbraut.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.