Fasteignasalarnir Vernharð Þorleifsson og Magga Gísladóttir kynna vel skipulagða og bjarta 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með suðursvalir og bílskúr í góðu fjölbýli í Grafarholtinu.
* Glæsilegt útsýni
* Tvö rúmgóð svefnherbergi
* Fataskápar í báðum herbergjum
* Þvottahús innan íbúðar
* Bílskúr
* Laus til afhendingarFrekari upplýsingar veita Vernharð Þorleifsson löggiltur fasteignasali í síma 699-7372 / venni@remax.is og Magga Gísladóttir löggiltur fasteignasali í síma 698-7494 / magga@remax.isKíktu í heimsókn til okkar á Facebook eða
á InstagramSamkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands er birt flatarmál eignarinnar 113,5 fm sem skiptist eftirfarandi:
Íbúðarrými 81,9 fm, geymsla 11,6 fm og bílskúr 20 fm
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þvottahús, baðherbergi, tvö svefnherbergi, geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing eignar:Forstofan er með tvöföldum fataskáp upp í loft.
Eldhúsið nýlegar subway flísar á milli skápa og rúmgóðum borðkrók með glugga til suðurs. Ísskápur og uppþvottavél geta fyllt með í kaupum.
Stofan er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi á 8,3 fm svalir sem snúa til suðurs.
Baðherbergið er er flísalagt í hólf og gólf. Handklæðaofn og með upphengdu salerni. Nýleg innrétting og handlaug, Spegill með baklýsingu.
Hjónaherbergið er með fataskáp og einstaklega fallegu útsýni til norðurs.
Svefnherbergið er einnig rúmgott með tvöföldum fataskáp upp í loft og fallegu útsýni til norðurs.
Þvottahúsið er með vaski, tengi fyrir bæði þvottavél og þurrkara og eru flísar á gólfi.
Gólfefni íbúðar: Parket á allri íbúðinni utan votrýma en þar eru flísar.
Í sameign er sameiginleg vagna- og hjólageymsla og er sér inngangur inn í sameignina einnig utan frá, vestan megin við húsið.
Sér-geymsla íbúðar sem er 11,6 fm.
Bílskúrinn er 20 fm með heitu og köldu vatni, rafdrifinni hurð og steyptu gólfi. Innrétting er innst í bílskúrnum og rými fyrir ísskáp.
Inngangar í húsið eru þrír. Sunnan-, norðan- og vestanmegin
Lóðin og garðurinn er sameigin allra í Kristnibraut 37-41.
Sameignin er snyrtileg og til fyrirmyndar.
Framkvæmdir í húsfélaginu Kristnibraut 37
2018 - Málað handrið í stigagangi og stigagangur málaður.
2019 - Skipt um teppi á stigagangi
Framkvæmdir í húsfélaginu Kristnibraut 37 - 41
2018 - Gluggar málaðir að utan
2019 - Þak málað
2020 - Hvítir fletir málaðir að utan, steinaði hlutinn sílanborinn og borið á allar útidyrahurðir