Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Víðimýri 16 - Skemmtilegt 3-4ra herbergja einbýlishús, hæð og ris á horn lóð í grónu hverfi á Brekkunni - stærð 115,2 m² Eignin skiptist með eftirtöldum hætti,
Hæð 79,9 m²: Forstofa/aðalinngangur, hol, eldhús, borðstofa, stofa, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Ris 35,3 m²: Hol, geymsla og tvö svefnherbergi.
Forstofa/aðalinngangur er með plastparketi á gólfi. Úr forstofu er gengið inn á hol með flísum á gólfi og þar er stigi upp í risið.
Eldhús hefur nýlega verið endurnýjað. Þar er dökkt harðparket á gólfi, grá innrétting með dökkbrúnni bekkplötu og gráum fibó plötum á milli skápa. Lítil uppþvottavél er innfelld í innréttingu og fylgir hún með við sölu eignar. Opið er úr eldhúsinu yfir í borðstofuna og þaðan yfir í stofu.
Borðstofa og stofa eru með ljósu plastparketi á gólfi og gluggum til tveggja átta.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, ljós viðar innrétting og speglaskápur, upphengt wc, sturta og opnanlegur gluggi.
Hol á efri hæðinni er með ljósu plast parketi á gólfi.
Svefnherbergin eru tvö, bæði á efri hæðinni. Stærra herbergið er með ljósu plast parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. Minna herbergið er til norðurs og án gólfefna.
Geymsla er undir súð í risi. Önnur geymsla er inn af þvottahúsinu með dökku harðparketi á gólfi, hillum og opnanlegum glugga.
Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir eignina. Þar er dökkt harðparket á gólfi og bekkur með skolvaska.
Annað* Timburverönd er frá aðalinngangi, með suðurhliðinni og að bílastæði norðan við hús. Borið var á dekk og skjólveggir málaðir 2026.
* Geymsluskúr er á veröndinni.
* Rúmgott malbikað bílaplan.
* Frárennsli hefur verið endurnýjað undir húsi og út í götu.
* Búið er að endurnýja hluta af raflögnum og í töflu.
* Búið er að taka inn ljósleiðara.
* Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.