Föstudagur 17. apríl
Fasteignaleitin
Skráð 17. apríl 2026

Heiðarmói 24

Nýbygging • RaðhúsNorðurland/Akureyri-603
144.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
117.900.000 kr.
Fermetraverð
817.048 kr./m2
Fasteignamat
59.700.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2542407
Landnúmer
236945
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
2025-2026
Raflagnir
2026
Frárennslislagnir
2025-2026
Gluggar / Gler
2025-2026
Þak
2025-2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
24,09
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Skjólveggir á baklóð verða beint út frá húsi á milli íbúða en ekki í "L" eins og sýnt er á teikningum. 
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Heiðarmói 24 - Nýbygging

Glæsileg 4ra herbergja raðhúsaíbúð með bílskúr í byggingu í Móahverfi - 144,3 m²

Íbúðin selst fullbúin og áætlaður afhendingartími er september 2026.

Íbúðir nr. 24 og 26 eru 144,3 m² að stærð skiptast í forstofu, gang, eldhús og stofu opnu rými, baðherbergi, tvö barnarherbergi skráð 7,9 og 10,7 m² að stærð, hjónaherbergi með baðherbergi, sér þvottahús og bílskúr.

 * Vandaðar innréttingar og fataskápar frá GKS, dökk brúnar (Walnut) og ljósar (Sand). Silestone Motion Grey steinn á eldhúsbekk og eyju.
*  Hljóðdempandi dúkur í öllum loftum nema bílskúr.
*  Vínylparket og flísar á gólfum og epoxy í bílskúr.

Frágangur innanhúss
Gólfin
eru steypt með ísteyptri hitalögn. 6mm Dovecot vínylparket frá Birgisson verður á alrýmum og Studio sabbia 60*60 flísar á baðherbergi og í þvottahús. Í bílskúr verður Epoxy á gólfum.
Veggir. Innveggir eru úr krosslímdum timbureiningum, klæddir af með gifsklæðningu. Veggir verða málaðir í ljósum lit.
Loft eru niðurtekin í barnaherbergjum, þvottahúsi, baðherbergjum og fataherbergi. Öll loft eru klædd með hljóðdempandi dúk nema í bílskúr, þar verður gips í loftum.
Innihurðar eru yfirfelldar, hvítar með hefðbundnum hurðarkörmum.
Eldhús, innrétting er plastlögð dökk brún (Walnut) frá GKS og með svörtum höldum. Innbyggður ísskápur með frysti, uppþvottavél og bakaraofn, frá Siemens fylgir með við sölu. Helluborð er frá Bora. Eldhúsinnréttingin er með mjúklokunarbúnaði og borðplötur eru Silestone Motion Grey steinn.
Baðherbergi, gólf eru flísalögð og veggir að hluta, aðrir veggir eru málaðir. Innrétting er plastlögð dökk brún (Walnut) frá GKS. Borðplata er ljós plastlögð. Blöndunar- og sturtutæki eru frá Mora, innfelld sturtutæki frá Hansa bluebox verða á aðalbaðherberginu. Salerni eru vegghengd og með innbyggðum vatnskassa. Sturtugólf eru einhalla með glervegg.
Þvottaherbergi, gólf eru flísalögð. Innrétting ljós plastlögð (Sand) frá GKS með skolvask. Borðplata er ljós plastlögð. Stæði er í innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi, vel skipulagðir fataskápar eru í svefnherbergjum sbr. innréttingateikningar. Fataskápar eru plastlagðir ljósir (Sand) frá GKS  og með mjúklokunarbúnaði. Fataskápar í íbúðum 24 og 26 eru dökk brúnir (Walnut) en opnir í íbúðum 22 og 28.
Forstofa, skápar plastlagðir dökk brúnir (Walnut) frá GKS.
Rafkerfi, rofar og tenglar (fyrir rafmagn, tölvu/síma) eru settir upp í samræmi við raflagnateikningar.
Ljósleiðari. Inntak fyrir ljósleiðara verður í húsinu en eftir verður að tengja og ganga frá endabúnaði þjónustuveitu (Míla eða Tengir) sem kaupandi gengur sjálfur frá. 
Ljós. Íbúðunum er skilað með innfelldri lýsingu í öllum rýmum og með Plejd snjallstýring fyrir utan bílskúr.
Loftræsti- hita- og neyslukerfi. Gólfhitakerfi er í íbúðunum. Neysluvatnskerfi er með millihitara. (Með því að hita upp kalt vatn með hitaveituvatni má halda kísil og öðrum steinefnum í lágmarki).
Vélrænt loftskiptikerfi sér um að hita upp ferskt loft með útkastslofti. Rekstrakostnaður hitunar gæti lækkað og einnig minnkar ryk innandyra verulega með tilkomu þessa kerfis og heilnæmi andrúmslofts eykst. Útsog er tekið úr öllum rýmum hússins. Nema í bílskúr, þar er rakastýrð útsogsvifta.
 
Frágangur utanhúss
Útveggir
eru úr krosslímdum timbureiningum klæddir að utan með öndunardúk og 100mm steinull. Utan á steinull kemur vinddúkur, loftunargrind og álklæðning í panel. Skyggni og uppundir þakkant verður klætt með svörtu áli.
Þak, þakplata er úr krosslímdum timbureiningum. Ofan á einingar er rakavarnarlag, tvö lög af harðpressaðri einangrun og að lokum PVC dúkur sem kemur með 10 ára ábyrgð, klætt á í janúar 2026. 
Gluggar og útihurðir. Ál/tré glugga- og hurðakerfi í húsinu er frá Byko, litur RAL9005. Gluggar eru hefðbundnir ál/trégluggar með tvöföldu einangrunargleri og sólstoppi. Gluggar eru settir í eftirá. Bílskúrshurðar eru rafdrifnar og koma frá Héðinshurðum. Svartar að utan og hvítar að innan.
Verönd er steypt með niðurfalli. Skjólveggir milli íbúða eru steyptir. Gert er ráð fyrir að kaupendur geti sett heitan pott á verönd (það verður ídráttarrör fyrir vatnslagnir, rafmagn, niðurfall). Snjóbræðslulagnir verða í hluta af verönd.
Lóð verður þökulögð.
Sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur fylgir hverri íbúð.
Bílastæði, tvö steypt bílastæði eru fyrir framan hverja íbúð. Gert er ráð fyrir að hægt verði að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla bæði inní bílskúr og fyrir utan. Snjóbræðslulagnir, lokað kerfi er í bílastæðum og stétt fyrir framan húsið.

Til áréttingar, upplýsingar og myndefni í skilalýsingu geta breyst á byggingartíma. Allt efni og teiknaðar, þrívíddarmyndir eru birtar með fyrirvara um hugsanlegar villur. Tölvuteiknaðar myndir í auglýsingu eru aðeins til viðmiðunar en endurspegla ekki endilega nákvæmt efnis- eða litaval eða aðra eiginleika framar lýsingu.  
  
Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar þess verður krafist, (0,3% af brunabótamati viðkomandi eignar).

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
29.5 m2
Fasteignanúmer
2542407
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
06
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (9)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Núpahraun 41
Skoða eignina Núpahraun 41
Núpahraun 41
815 Þorlákshöfn
104.6 m2
Raðhús
413
668 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallatangi 16
Jón Rafn_vefur (2).jpg
Skoða eignina Hjallatangi 16
Hjallatangi 16
340 Stykkishólmur
196.7 m2
Einbýlishús
413
480 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Skoða eignina Höfðamói 1
Bílskúr
Skoða eignina Höfðamói 1
Höfðamói 1
603 Akureyri
167.4 m2
Parhús
413
747 þ.kr./m2
125.000.000 kr.
Skoða eignina Báruklöpp 12
Bílskúr
Skoða eignina Báruklöpp 12
Báruklöpp 12
250 Garður
140.6 m2
Parhús
312
701 þ.kr./m2
98.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin