CROISETTE - KNIGHT FRANK kynnir í einkasölu fallega 110,9 fm íbúð á annari hæð í fjölbýli við Lækjasmára í Kópavogi. Eignin samanstendur af 3 svefnherbergjum, þvottahúsi/geymslu, eldhúsi, baðherbergi, forstofu, stofu og borðstofu. Stutt er í Smáraskóla, leikskólann Læk, Kópavogsvöll, Smáratorg og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veita Eva Margrét Ásmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 822-8196 eða á netfanginu eva@croisette.is Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali, í síma 663-6700 eða á netfanginu kalli@croisette.isSMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SÖLUYFIRLIT
SMELLTU HÉR TIL AÐ SKOÐA EIGNINA Í 3-DNánari lýsing:Anddyri: Gott anddyri með rúmgóðri viðarinnréttingu. Flísar á gólfi.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa, útgengt á rúmgóðar vestursvalir. Gegnheilt parket á gólfi.
Eldhús: Eldhús með brúnni viðarinnréttingu. Drappaðar flísar á milli skápa. Flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Gott herbergi með stórum skápum. Gegnheilt parket á gólfi.
Barnaherbergi 1: Rúmgott herbergi með skáp. Gegnheilt parket á gólfi.
Barnaherbergi 2: Rúmgott herbergi með skáp. Gegnheilt parket á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuklefa og baðkari, hvít innrétting og speglaskápur. Dökkar flísar eru á gólfi og hvítar upp á veggi.
Þvottahús: Þvottahús með flísum á gólfi.
Íbúðinni fylgir 6.9 fm geymsla. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.Snyrtileg full frágengin lóð með góðum leikvelli. Búið er að setja upp þrjár hleðslustöðvar á bílastæðinu fyrir framan húsið og undirbúningur hafin að bæta þremur til viðbótar.Nánari upplýsingar veita:
Eva Margrét Ásmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í s. 822-8196 eða eva@croisette.is Karl Lúðvíksson, löggiltur fasteignasali í s. 663-6700 eða kalli@croisette.is Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Croisette home fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: - Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á.