Rúmgóð og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð að Suðurvangi 2, 220 Hafnarfirði. Íbúðin er skráð 118,5 fm þar af 5,8 fm geymsla í sameign. Húsið hefur fengið gott viðald síðustu ár m.a. búið að skipta um þak, endunýja alla glugga og setja upp nýja rafmagnstöflu. íbúðin getur verið laus til afhendingar fljótlega eftir kaupsamning.Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða gunnarbergmann@eignamidlun.is
Lýsing íbúðar:Gengið er upp nokkrar tröppur inn í sameiginlegan stigagang. íbúðin er á fyrstu hæð. Komið inn í gott rými íbúðarinnar sem í dag er nýtt sem sjónvarpshol. Svefnherbergisgangur með þrem svefnherbergjum og baðherbergi. Baðherbergi flísalagt með innréttingu og baðkari. Rúmgott hjónaherbergi með góðu skápaplássi, annað barnaherbergi rúmgott með skápum, hitt minna. Nýlega búið að leggja nýtt parket á svefnherbergi og gang. Eldhús inn af miðrými með upprunalegri innréttingu. Þvottahús og geymsla inn af eldhúsi. Björt og falleg borðstofa/stofa með útgengi út á vestur svalir.
Húsfélagið að virkt og hefur verið í framkvæmdum síðustu ár:
2016/2023: Skipt út öllum gluggum í húsinu fyrst framhlið 2016 og bakhlið 2023.
2020: Ný rafmagnstafla fyrir stigaganginn og nýjir ofnar í sameign.
2016/2023: Nýjir sólbekkir í íbúðinni á sama tíma og skipt var um glugga.
2012: Nýtt þak á húsið.
Þá hefur hluti af húsinu verið klætt og annar hluti múrviðgert og málað.
Sérmerkt bílastæði fyrir framan hús og næg gestastæði.
Hér er um að ræða rúmgóða og vel skipulagða 4ja herbergja íbúð á góðum stað í Hafnarfirðinum þar sem stutt er í leik-og grunnskóla, ýmis konar verslun og þjónustu og góðar samgönguleiðir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - gunnarbergmann@eignamidlun.is - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.