Sunnudagur 24. nóvember
Fasteignaleitin
Opið hús:24. nóv. kl 15:00-15:30
Skráð 20. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Lindarberg 70

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
229.7 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
137.500.000 kr.
Fermetraverð
598.607 kr./m2
Fasteignamat
126.650.000 kr.
Brunabótamat
106.100.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1993
Þvottahús
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2215057
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Frá því að húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Opið hús - Lindarberg 70 Hafnarfirði - sunnudaginn 24. nóvember klukkan 15:00 - 15:30

Seljandi skoðar uppítöku á minni eign.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir fallegt og vel skipulagt 229,7 fermetra parhús á tveimur hæðum, með bílskúr og útleigurými við Lindarberg 70 í Hafnarfirði. Húsið skiptist í 191,7 fermetra íbúðarrými og 38,0 fermetra innbyggðan bílskúr. Eignin er með stórum alrýmum með mikilli lofthæð og þremur svefnherbergjum í dag en möguleiki er að bæta við svefnherbergi og baðherbergi á kostnað útleigurýmis. Auk þess er einfalt að bæta við öðru baðherbergi þar sem þvottaherbergi og geymsla er staðsett á teikningum án þess að opna inn í útleigurými. Afar glæsilegt útsýni er frá alrými efri hæðar og svölum út á sundin og yfir Hafnarfjörðinn.

Komið er inn í forstofu á neðri hæð með skápaplássi. Tvö svefnherbergi eru staðsett á neðri hæð í dag og inngengt er í bílskúr í gegnum rými þar sem þvottaherbergi/geymsla var staðsett. Möguleiki er að bæta við baðherbergi þar sem þvottaherbergi er teiknað líkt og fyrr greinir. Gengið er upp efri hæð frá holi um steyptan parketlagðan stiga. Alrými á efri hæð eru stór með mikilli lofthæð. Skiptist í rúmgóða borðstofu og setustofu. Frá setustofu er gengið í sólstofu og þaðan á rúmgóðar svalir með miklu útsýni. Auk þess eru minni svalir út frá borðstofu. Eldhús er rúmgott með borðkrók en möguleiki er að opna það við borðstofu. Þá er hjónaherbergi og baðherbergi staðsett á efri hæð hússins. Útleigurými er með sérinngang frá bakgarði sem skiptist í opið studio-rými með eldunaraðstöðu þar inn af og baðherbergi.

Lóðin er virkilega falleg með mynstursteyptu bílaplani og stétt með snjóbræðslu fyrir framan hús. Afgirt viðarverönd til suðvesturs og þar tekur við hellulögð verönd í bakgarði. Tyrfðar flatir framan og aftan við hús. Afgirt baklóð.

Frábær staðsetning á fjölskylduvænum stað þar sem leikskólinn Hlíðarberg og Setbergsskóli eru í göngufjarlægð. Stutt er í íþróttasvæði FH og golfvöll (Setbergsvöll). Stutt í verslun og þjónustu og göngu- og hjólaleiðir við fallega náttúruna allt í kring, t.d. Urriðavatn, Setbergshlíð og allt að Hvaleyrarvatni og Heiðmörk.
 
Nánari lýsing:

Neðri hæð:
Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Gangur/hol: Með flísum á gólfi.
Svefnherbergi I: Er rúmgott með parketi á gólfi. Gluggar til vesturs og norðurs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi og glugga til austurs.
Þvottaherbergi/geymsla: Er staðsett inn af holi. Möguleiki að gera auka baðherbergi í þessu rými. Innangengt í bílskúr í gegnum rými.

Efri hæð: Steyptur parketlagður stigi er á milli hæða. Alrými efri hæðar er stórt, með mikilli lofthæð og fallegu útsýni.
Setustofa: Er rúmgóð, með parketi á gólfi og mikilli lofthæð. Gluggar til vesturs og norðurs. Útgengi á svalir. 
Svalir I: Snúa til norðurs og með útgengi frá borðstofu.
Stofa: Er rúmgóð, með parketi á gólfi og mikilli lofthæð. Gluggar til vesturs. Opin við borðstofu og sólstofu. 
Sólstofa: Með gluggum til suðurs, vesturs og norðurs. Fallegt útsýni og útgengi á rúmgóðar svalir.
Svalir II: Eru rúmgóðar til vesturs og með afar fallegu útsýni út á sundin og víðar.
Eldhús: Með dúk á gólfi, viðar eldhúsinnréttingu og aukinni lofthæð. Möguleiki er að opna eldhús við borðstofu þar sem léttur veggur skilur rýmin af. Stál bakaraofn og örbylgjuofn. Tengi fyrir uppvþottavél, spansuðu helluborð og stál háfur. Flísar á milli skápa og lýsing undir efri skápum.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Aukin lofthæð og gluggi til austurs. Baðkar með sturtutækjum, innrétting við vask, upphengt salerni og skápar.

Bílskúr: Er 38,0 fermetrar að stærð. Málað gólf, rafmagnshurðaopnun á bílskúrshurð. Auk þess er inngangshurð frá framlóð.

Útleigurými: Er studiorými með eldunaraðstöðu. Parket á gólfi og sérinngangur frá bakgarði. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturtu, innréttingu við vask og salerni.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
23/01/201345.650.000 kr.45.000.000 kr.229.7 m2195.907 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2024

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fífuvellir 13
Bílskúr
Opið hús:26. nóv. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Fífuvellir 13
Fífuvellir 13
221 Hafnarfjörður
209.7 m2
Raðhús
524
619 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Furuvellir 44
Bílskúr
Skoða eignina Furuvellir 44
Furuvellir 44
221 Hafnarfjörður
226 m2
Einbýlishús
614
619 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Drangsskarð 1A
Bílskúr
Skoða eignina Drangsskarð 1A
Drangsskarð 1A
221 Hafnarfjörður
233 m2
Parhús
635
579 þ.kr./m2
134.800.000 kr.
Skoða eignina Furuhlíð 23
Bílskúr
Skoða eignina Furuhlíð 23
Furuhlíð 23
221 Hafnarfjörður
196.8 m2
Raðhús
514
716 þ.kr./m2
140.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin