Rúmgott og bjart 188,0 fm einbýlishús með stórum, grónum suðurgarði, sambyggðum bílskúr og fjölbreyttum möguleikum í fjölskylduvænu hverfi á Selfossi.- Eign með mikinn karakter og spennandi framtíðarmöguleika.
- Þrjú rúmgóð svefnherbergi og tvö baðherbergi, með möguleika á allt að fimm svefnherbergjum.
- Stór og gróinn suðurgarður.
- Sambyggður 45,8 fm bílskúr.
Samkvæmt skráningu HMS er íbúðarhúsnæðið 142,2 m² að stærð, auk 45,8 m² sambyggðs bílskúrs. Heildarstærð eignarinnar er því 188,0 m².
Nánari upplýsingar veita:Andrea Ósk Harradóttir Lgf. í S: 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurEignin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, þrjú svefnherbergi, sjónvarpshol, bjarta stofu og borðstofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús með sérinngangi og sambyggðan bílskúr.Nánari lýsing eignarForstofa: Flísalögð forstofa með fallegri viðarútidyrahurð og skrautgleri sem gefur rýminu sérstakan karakter. Gestasnyrting og svefnherbergi eru staðsett við forstofuna.
Gestasnyrting: Flísalögð snyrting við forstofu.
Svefnherbergi: Bjart og rúmgott svefnherbergi við forstofu, með parketi á gólfi.
Sjónvarpshol: Opið og notalegt sjónvarpshol með parketi á gólfi sem nýtist vel sem sjónvarps- eða setuaðstaða. Möguleiki er á að loka rýminu af og nýta sem viðbótarsvefnherbergi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með upptekinni lofthæð og stórum gluggum sem hleypa ríkulegri dagsbirtu inn. Parket er á gólfi og falleg tenging við borðstofu.
Borðstofa: Rúmgóð borðstofa með parketi á gólfi og stórum gluggum sem veita fallega sýn út í gróinn garðinn. Frá borðstofu er útgengt á verönd við húsið.
Eldhús: Bjart og rúmgott eldhús með hvítri innréttingu, góðu skápaplássi og vinnuaðstöðu. Rúmgóður borðkrókur er við glugga. Parket er á gólfi.
Hjónaherbergi: Sérlega rúmgott og bjart hjónaherbergi með parketi á gólfi og fataskáp. Stór gluggi veitir fallega sýn út í garðinn og þaðan er einnig útgengt á verönd.
Svefnherbergi: Sérlega rúmgott svefnherbergi með parketi á gólfi og gluggum sem snúa að gróðursælum garðinum. Herbergið var áður tvö aðskilin herbergi og býður upp á möguleika á að skipta því aftur upp.
Baðherbergi: Flísalagt baðherbergi í hlýlegum, eldri stíl með ljósum, mynstruðum flísum sem gefa rýminu sérstakan karakter. Þar er baðkar með sturtuaðstöðu, salerni og innrétting með góðu geymsluplássi.
Þvottahús: Flísalagt þvottahús með sérinngangi, innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt búrskáp.
Bílskúr: Sambyggður 45,8 fm bílskúr með flísalögðu gólfi, bílskúrshurð með opnara og gönguhurð út á baklóð.
Garður og útisvæði: Stór og gróinn suðurgarður með fjölbreyttum trjágróðri sem skapar fallega og notalega umgjörð um húsið. Við húsið er steypt verönd undir þakskeggi með aðgengi frá bæði borðstofu og hjónaherbergi. Hellulögð innkeyrsla með hitalögnum er framan við húsið.
Endurbætur og viðhaldÁrið 2023 var þak íbúðarhússins endurnýjað. Skipt var um þakjárn, klætt undir þak, þakkantar endurnýjaðir og klætt undir þá, sperruendar endurnýjaðir og nýjar þakrennur settar upp.
Árið 2020 var skipt um þakjárn og klætt undir þak á bílskúr. Raflagnir hafa einnig verið endurnýjaðar að hluta samkvæmt upplýsingum seljenda.
Athugasemdir um ástand eignar:
Samkvæmt ástandsyfirlýsingu seljenda er halli á gólfi í stofu og barnaherbergi, sem var þegar til staðar við kaup seljenda árið 2012. Þá hafa komið fram rakamerki við glugga í stofu og hjónaherbergi. Nánari upplýsingar um ástand eignarinnar koma fram í ástandsyfirlýsingu seljenda sem fylgir sölugögnum.
StaðsetningDælengi 17 er staðsett í grónu og fjölskylduvænu hverfi á Selfossi. Stutt er í grunnskóla, leiksvæði, íþróttaaðstöðu, sundlaug og fjölbreytta þjónustu í miðbæ Selfoss.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.