Borgir fasteignasala kynnir:
Björt 4 herbergja enda íbúð á 4. hæð .
Laus strax.
Mikið útsýni gluggar í þrjár áttir.
Lýsing: Komið í rúmgott hol, viðarklæðning á veggjum, fataskápar, góður gluggi i austur.
Holið er opið í mjög góða, bjarta stofu þaðan sem gengið er út á stórar svalir í vestur.
Frá holi er einnig opið í eldhúsið sem er með upphaflegum innréttingum en eldhúsið er bjart með tveim góðum gluggum.
Á svefnherbergja gangi eru svo 3 herbergi og baðherbergi. Gluggi í norður við enda gangs.
Barnaherbergi 1 : Fyrst er barnaherbergi með glugga að svölunum, fataskápur.
Aðal svefnhergi :Síðan er hjónaherbergið með góðum skápum og þaðan gegnt út á svalirnar.
Barnaherbergi 2: Á móti hjónahebergi er eitt lítið herbergi með glugga í austur.
Baðherbergi: Við hlíðina á litla herbergjinu er baðherbergið. Þar baðkar. Upphaflegar flísar á veggjum.
Gólfefni er parket á flestu en dúkur á baðherbergi og eldhúsi.
Geymslu skápur á stigapalli við innganginn í íbúðina.
Í sameign í kjallara er sér góð geymsla með glugga.
Sameiginlegt þvottahús og þurkherbergi í kjallara.
Einnig sameiginleg læst hjólageymsala með inngangi utan frá.
Búið að endurnýja mest allt gler í gluggum í íbúðinni.
Gott viðhald á blokkinni, búið að endurnýja lagnir undir húsinu og stéttar og fleira kringum húsið.
Frábær staðsetning:Stutt í Kringluna, og alla þjónustu þar.
Verslunarmiðstöðin Miðbær er í næsta húsi.
Nánari upplýsingar veitir Ægir, í síma 896-8030, eða aegir@borgir.i