Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515 kynnir: Glæsilega íbúð á sjöttu hæð með þakgarði til suðurs við Heklureitinn. Laugavegur 168, íbúð 607. Björt og falleg 114,3 fm íbúð með tveimur svefnherbergjum þar sem möguleiki er að bæta við aukaherbergi. Komið inní anddyri með fataskápum. Baðherbergi með sturtu, innaf baðherbergi er þvottahús. Hjónasvíta með miklu skápaplássi, fataherbergi og baðherbergi. Svefnherbergi II með fataskáp. Þakgarðurinn sem er 32,8 fm, er með tengi fyrir heitan pott og vel má koma fyrir grilli og húsgögnum til útiveru á fallegum sumardögum og kvöldum. 11 fm sérgeymsla er í kjallara ásamt stæði merkt B20 Myndir í myndasýningu eru tölvuteiknaðar og úr annarri íbúð.
Kynningarbæklingur fyrir þakíbúðirnarÍ eldhúsi verður eyja, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini, sérframleiddur frá Santamargherita á Ítalíu. Vönduð tæki frá Siemens, sem koma úr StudioLine gerðinni en hún býður uppá úrval glæsilegra tækja sem gera eldamennskuna sérlega þægilega og ánægjuríka. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða baðherbergi eru valin með tilliti til gæða og endingar.
Hafstudio og Studio Homestead koma að hönnun innréttinga og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Kaupendur hafa tækifæri til að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergi, komi þeir tímanlega að borði.
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds.
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga.
Örstutt er í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut.
Afhending miðast við september 2025
Heimasíða verkefnisBókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali. - netfang: jason@betristofan.is
Atli S. Sigvarðsson, sími 899 1178 - löggiltur fasteignasali. - netfang: atli@betristofan.is
Gunnar S. Jónsson, sími 899 5856 - löggiltur fasteignasali. - netfang: gunnar@betristofan.is
Páll Þórólfsson, sími 893 9929 - löggiltur fasteignasali. - netfang: pall@betristofan.is