Borg fasteignasala kynnir til sölu fallega 4ja herbergja hæð á vinsælum stað við Háteigsveg í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, borðstofu, stofu, tvö barnaherbergi, hjónaherbergi, eldhús og baðherbergi. Sérgeymsla er í sameign og sameiginlegt þvottahús. Falleg hæð með Klambratúnið og Kjarvalsstaði í göngufæri. Nánari lýsing:
Komið er inn á flísalagða forstofu með fatahengi.
Inn af forstofu er hol með parketi.
Borðstofa og stofa eru bjartar með parketi.
Barnaherbergin eru tvö, bæði með parketi.
Hjónaherbergi er rúmgott með parketi og fataskápum.
Eldhús er flísalagt með hvítlakkaðri innréttingu og steinborðplötum.
Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa.
Sérgeymsla er í sameign og sameiginlegt þvottahús.
Gagnkvæmur forkaupsréttur er á milli 1. og 2.hæðar hússins. Íbúðin á 34% eignarhluta í bílskúrsréttindum á móti 2.hæð
Yfirlit yfir framkvæmdir.Húsið steypuviðgert og steinað 2019-2020
Farið var yfir þakið 2019-2020.
Skipt var um glugga í húsinu þar sem við átti.
Skipt var um klóak/affallsrör árið 2020.
Rafmagnstafla var yfirfarin árið 2019.
Drenið var tekið í gegn árið 2005.
Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari í síma 897-1401 brandur@fastborg.is hjá BORG fasteignasölu.Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði