Fasteignasalan TORG kynnir: Einbýlishús með innbyggðum bílskúr/stúdíóíbúð á góðum stað við Kaldasel 2 í Seljahverfinu. Eignin er staðsett innst í götunni með nægum bílastæðum. Húsið er á þremur hæðum, með 4 rúmgóð svefnherberg og einstaklingsíbúð. Skjólgóður stór garður í góðri rækt, garðhýsi með heitum potti. Stutt í alla þjónustu, leikskóla, grunnskóla og græn svæði.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 233,2fm. og þar af bílskúr/einstaklingsíbúð 29,6fm. Til viðbótar er yfirbyggður ca. 40 fermetra garðskáli sem ekki inn í fermetratölu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.isNánar um eignina:Forstofa með góðu skápaplássi og flísar á gólfi innaf forstofu er baðherbergi með sturtu. Innangengt er frá forstofu í bílskúr sem búið er að breyta í stúdíóíbúð.
Steyptur flísalagður stigi liggur upp á aðra hæð hússins.
MiðhæðStofa /borðstofa er rúmgóð og björt með harð parketi og fallegu útsýni. Útgengt er út á svalir Einnig útgengt út á yfirbyggðan pall með heitum potti.
Eldhús með snyrtilegri eldhúsinnréttingu, granítborðplata, ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél, rúmgóður eldhúskrókur, flísar á milli skápa og flísar á gólfi.
Þvottahús Er með hillum, tengi fyrir vask og flísar á gólfi. Útgengt er út í garð úr þvottahúsinu.
Baðherbergi með innréttingu og sturtuklefa, handklæðaofn og flísar á gólfi.
Geymsla/Búr Köld geymsla á móti eldhúsi
Efsta hæðSjónvarpshol rúmgott með pl. parketi á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðu skápaplássi og útgengt út á svalir, pl. parket á gólfi, og útsýni yfir alla borgina og yfir á Snæfellsnes
Svefnherbergi II með skáp og pl. parketi á gólfi.
Svefnherbergi III með skáp, pl. parket á gólfi og stiga sem liggur upp á kalt þakgeymsluloft sem er yfir allri hæðinni.
Svefnherbergi IIII með skáp og pl.parketi á gólfi.
Baðherbergi með baðkari, handklæðaofn, gluggi og flísar á gólfi.
Bílskúr/stúdíóíbúð Rúmgott alrými með hvítri eldhúsinnréttingu, ofn, helluborð og háf/viftu, tengi fyrir uppþvottavél.
Garður í kringum húsið er í góðri rækt.
Fyrir framan húsið eru næg bílastæði.
Frábær staðsetning er þar sem er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla og verslanir. Góðar göngu- og hjólaleiðir í kring.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila,
en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og
ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.