Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu rúmgott 3ja herbergja 83.1fm endaraðhús við Berjateig í Garði.
------ Eignin getur verið laus fljótlega ------Forstofa er flísalögð og þar er góður skápur
Hol er parketlagt
Stofa er parketlögð og hurð er út á verönd frá stofu.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er góð innrétting ásamt góðum tækjum, ofn, helluborð og vifta. Innbyggð uppþvottavél fylgir með eigninni.
Á baðherbergi eru flísar bæði á gólfi og á veggjum, þar er góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og flísalögð sturtuaðstaða stúkuð af með gleri.
Á baðherbergi er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergin eru tvö og eru þau bæði parketlögð, skápar eru í báðum herbergjum.
Geymsla er ca. 4 - 5fm
*Hiti er í öllum gólfum hússins.
*Góð verönd er á baklóð, óafgirt.
*Bílastæði eru malbikuð og stétt er hellulögð.
*Húsið er timburhús með kraftsperruþaki á staðsteyptum undirstöðum.
*Útveggir eru bandsöguð timburklæðning í dökkgráum lit með gluggum og hurðum úr timbri í hvítum lit.
*Stutt í alla þjónustu - göngufæri í skóla, sundmiðstöð og íþróttir - Stutt í golf, Sandgerði og Leira.
*Falleg og vel staðsett eign í nýju hverfi í uppbyggingu.
Nánari upplýsingar um eignina veitir:
Halldór Magnússon lfs
S: 420-4000 / 863-4495
dori@studlaberg.is.