Valný fasteignasala og Valgeir Leifur Vilhjálmsson löggiltur fasteignasali kynna:
Dalsbraut 34, íbúð 202, 260 Reykjanesbær Vönduð og vel skipulögð tveggja herbergja endaíbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi í Dalshverfi. Íbúðin er björt og falleg með opnu alrými. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðvestursvalir. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslun og aðra þjónustu.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 64.5 m². Eign merkt 02-02, fastanúmer 251-1940 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Lýsing og skipulag eignar: Komið er inn í forstofu með rúmgóðum fataskáp. Eldhús, borðstofa og stofa mynda opið alrými. Eldhúsinnrétting er grá með kvartsborðplötu. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur fylgja eigninni. Úr stofu er útgengt á 7,2 m² suðvestursvalir. Eitt svefnherbergi er í íbúðinni með fataskáp. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Þar er sturta, upphengt salerni, innrétting með kvartsborðplötu og nýlegur handklæðaofn. Tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi. Vínylparket er á meginrýmum íbúðarinnar en flísar á baðherbergi.
Byggingarlýsing og lóð: Dalsbraut 34 er steinsteypt fjölbýlishús með 15 íbúðum. Útveggir eru einangraðir að utan með steinull og klæddir álklæðningu. Gluggar eru úr timbri og áli með tvöföldu K-gleri og þak hússins er flatt. Á lóð eru 24 bílastæði í óskiptri sameign, þar af tvö ætluð hreyfihömluðum. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.