Sunnudagur 1. nóvember
Fasteignaleitin
Opið hús:05. nóv. kl 16:00-16:30
Skráð 1. nóv. 2026

Leifsgata 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
145.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
106.900.000 kr.
Fermetraverð
736.226 kr./m2
Brunabótamat
71.700.000 kr.
Byggt 1934
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20088051
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

ALDIR Fasteignir og Erla Friðriksdóttir, löggiltur fasteignasali s: 896 6960 / erla@aldirfasteignir.is kynna:
4 herbergja íbúð á 2. hæð í fjölbýli ásamt innréttuðum bílskúr við Leifsgötu 12 í Reykjavík.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Íbúð er 92,2 fm merkt 010201 óskráð geymsla í kjallara og 53 fm bílskúr merkt 700101, samtals 145.2 fm að stærð.

Nánari upplýsingar um eign:
Glæsileg, mikið endurnýjuð eign ásamt aukaíbúð með góðum tekjumöguleikum
Um er að ræða fallega og bjarta fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð ásamt aukaíbúð sem innréttuð hefur verið í bílskúr.
Eignin býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars til útleigu.

Nánari lýsing
Aðalíbúð á 2. hæð:

Forstofuhol er flísalagt með fatahengi
Eldhús er með nýlegri svartri innréttingu og flísum á gólfi
Stofa og borðstofa eru samliggjandi og mynda rúmgott alrými með parketi á gólfi, útgengt úr stofu á suðvestur svalir
Svefnherbergi eru þrjú öll með parketi á gólfum, þar af hjónaherbergi með fataskápum og annað herbergi með skáp
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með gólfhita og baðkari með sturtu
Þvottahús er sameiginlegt í kjallara
Risloft er yfir íbúðinni sem hefur verið nýtt sem geymslupláss
Geymsla óskráð sérgeymsla er í kjallara  

Aukaíbúð:
Fallega innréttuð íbúð í bílskúr með sérinngangi.
Forstofa er flísalögð með gólfhita og útgengi í garð
Eldhús er rúmgott með fallegri innréttingu, parketi á gólfi og góðu rými fyrir eldhúsborð
Stofa er parketlögð með sjónvarpsholi
Svefnherbergi er með parketi á gólfi og fataskápum
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu, innréttingu og gólfhita
Sérbílastæði fylgir eigninni við bílskúr

Eignin býður upp á áhugaverða möguleika fyrir kaupendur sem vilja nýta tvær aðskildar íbúðareiningar, hvort sem er til eigin nota eða útleigu.

Samkvæmt upplýsingum frá eigendum hafa eftirfarandi framkvæmdir farið fram:
Bárujárn og pappi endurnýjað á þaki árið 2019, sperrur og borðaklæðning hreinsaðar með þurrísblæstri og einangrun fjarlægð. Settur nýr þakgluggi og túður endurnýjaðar
Frárennslislagnir sunnan megin endurnýjaðar að hluta 2021
Skorsteinn klæddur og loftræsting frá baðherbergjum bætt 2024
Skúr málaður að utan 2025
Ný rafmagnstafla 2026, dregið í að fyrstu dós í hverri íbúð þar sem þurfti

Fyrirhugaðar framkvæmdir
Endurnýja frárennslislagnir norðan megin í húsinu (frá kjallara) og lagfæra kaldavatnslagnir í íbúð sömu megin á 1. hæð.

Nánari upplýsingar veitir Erla Friðriksdóttir, löggiltur fasteignasali s: 896 6960 / erla@aldirfasteignir.is.
 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Túngata 36A
template_1.jpg
Skoða eignina Túngata 36A
Túngata 36A
101 Reykjavík
202,7 m2
Parhús
734
982 þ.kr./m2
199.000.000 kr.
Skoða eignina Mávabraut 6
Skoða eignina Mávabraut 6
Mávabraut 6
230 Reykjanesbær
133,9 m2
Raðhús
614
552 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Kleppsvegur 38
Opið hús:05. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Kleppsvegur 38
Kleppsvegur 38
105 Reykjavík
103,9 m2
Fjölbýlishús
413
769 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 99
Opið hús:05. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hringbraut 99
Hringbraut 99
101 Reykjavík
53 m2
Fjölbýlishús
211
942 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin