Mikið endunýjuð falleg og afar vel skipulögð íbúð á 2. hæð í vinsælu fjölbýlishúsi við Barðastaði 7, 112 Reykjavík. Íbúðin skiptist í bjart alrými þar sem eru stofa, borðstofa, opið eldhús og sjónvarpsstofa og síðan hjónaherbergi, barnaherbergi, baðherbergi, þvottaherbergi, andyri og geymsla á jarðhæð. Húsið var árið 2021 múrviðgert og málað að utan og skipt var um glugga og gler eftir þörfum. Lóðin er snyrtileg, fjöldi bílastæða og hleðslustöðvar fyrir rafbíla. Snyrtileg sameign. Suðvestur svalir með útsýni.
Nánari lýsingÍbúðin er með nýlegu harðparketi sem flæðir um öll gólf nema það eru flísar á baðherbergi og þvottaherbergi. Stofa og borðstofa eru rúmgóðar og bjartar. Eldhúsið er opið inn í stofu og nýlega var m.a. skipt um borðplötu, vask, blöndunartæki, hurðir málaðar og eyjan endurnýjuð. Ofn er í vinnuhæð og span helluborð í eyju. Vinnurými er við eldhúsið. Hjónaherbergi er með stórum fataskápum og einnig er skápur í barnaherbergi. Baðherbergið er með flísum á gólfi og öllum veggjum. Þvottaherbergið er með flísalögðu gólfi og hillum á vegg. Andyrið er með fataskápum. Geymslan á jarðhæð er 7,1 fm og er með hillum.
Húsið er steinað að utan og viðhaldslétt. Árið 2021 var múrviðgert og málað og skipt um glugga og gler eftir þörfum. Árið 2022 var lyftan endurnýjuð nema sjálft lyftuboxið. Sameignin og lóðin eru snyrtileg. Fjöldi bílastæða og hleðslustöðvar fyrir rafbíla.
Eignin er afar vel staðsett. Stutt í leikskóla og grunnskóla og önnur þjónusta innan seilingar. Stutt í stofnleiðir og golfvöllurinn Korpa við hliðina. Einstök náttúrupardís umlykjandi og fallegar göngu- og hjólaleiðir meðfram sjónunum um og við Geldinganes og víðar.
Eignin Barðastaðir 7, íbúð 0203, er skráð sem hér segir hjá HMS: Fastanúmer
224-4864, birt stærð 108.8 fm.
Áætlað fasteignamat árið 2026 er 73,9 mkr.Hafið samband og bókið skoðun. Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Steinþórsson Viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali, í síma 8965865, tölvupóstur alli@valborgfs.is.Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.