Miklaborg kynnir: Stórglæsilegt einbýlishús á 3 HA eignarlóð á þessum fallega útsýnisstað að Hofstíg 17 á bökkum Ytri-Rangár.
2 hjónasvítur með sér snyrtingum. Útgengi úr svítum og stofu á stóra verönd og SPA svæði með sér gufubaðshúsi og köldum og heitum pottum. Mjög mikil lofthæð er í húsinu og fjallasýn úr gólfsíðum gluggum. Sérlaga vandað til hönnunar og efnisvals í húsinu og hefur eigandi hug á að selja húsið fullbúið húsgögnum sem sérvalin hafa verið. Húsið er með gistileyfi og hentar hvort heldur sem hýbýli eða í ferðamannaþjónustu. Heimilt er að byggja allt að 600 m2 á lóðinni í sex húsum.
Um 15 m2 2ja manna gestahús með snyrtingu er á lóðinni
Lóðin Hofstígur 15 sem er 3 HA er einnig til sölu ef ef kaupandi vill aukið jarðnæði við húsið.
Allar upplýsingar veitir Friðrik í s. 616 1313.
Nánari lýsing: Komið inn í forstofu með mikilli lofthæð. Veggir sem ganga lang leiðina gegum húsið á báðar hendur. Sjónsteypa annars vegar og hnota hins vegar. Hjónasvítur á hægri hönd með gólfsíðum gluggum, miklu útsýni og útgengi á SPA svæði. Hjónasvítur eru með baðherbergjum með fallegum innréttingum, marmara á borðum og walk-in sturtuklefum. Gegnheilar flísar á gólfum. Milliveggir eru tvöfaldir með einangrun og hljóðvist er því sérlega góð í svítunum. Áfram gengið inn í stórt og bjart alrými með gólfsíðum gluggum og miklu útsýni á þrjá vegu. 9,0 m2 glerskáli í norð-vestur. Falleg sérsmíðuð innrétting og frístandandi eyja úr marmara og íslensku blágrýti. Kamina / eldstæði er í stofu. Allar innréttingar hússins eru sérsmíðaðar. Hljóðeinangrandi dúkur er í lofti alrýmis og eldhúsi. Fullbúið veislueldhús er inn af alrými með góðri vinnuaðstöðu, kæli, frysti og vínkæli. Þar inn af er beymsla og þvotathús ásamt salerni. Gólfhiti er í öllu húsinu.
Gólfefni: Gegngeilt viðarparket er á flestum rýmum, en gegnheilar flísar á forstofu, baðgerbergjum og eldhúsi. Sérlausnir í húsinu: Öll lýsing hússins er sérhönnuð, bæði innan og utandyra. Sonos hjóðkerfi er í alrými og loftskiptikerfi er í húsinu. Þá er þjófavarna-vatns-og brunakerfi er í húsinu.
Á SPA svæði er sérstætt gufubaðshús með miklu útsýni og fordyri til fataskipta. Á hellulögðu svæði eru bæði heitur og kaldur pottur. Sunnan við aðkomu að húsinu er um 15 m2 gestahús með tveim rúmum og góðu baðherbergi Húsið selst fullbúið sérvöldum húsgögnum. M.a. eru sófar og stóll frá Taccini í stofu og Jensen rúm í svítum.
Sárlega glæsileg eign í rúmlega einnar klukkustundar fjarægð frá Reykjavík sem hentar vel sem íbúðarhús eða til þjónustu við ferðamenn.
Eignarlóðin Hofstígur 17 er 3 HA og lögheimilisskráning er heimil. Þá er húsið með heils árs gistileyfi. Alls má byggja 6 hús á lóðinni, allt að 600 fm. Eigandi hefur haldið Hofstíg 15, sem næsta lóð vestan og norðan við húsið frá sölu ef svo kynni að fara að nýr eigandi lóðar nr. 17 myndi vilja meira jarðnæði í kringum hús sitt. Á lóð nr. 15 er einnig heimilt að byggja allt að 600 m2 í 6 húsum. Þarna eru því tækifæri til frekari uppbyggingar þjónustu við ferðamenn. Verðið á lóðinni Hofstígur 15 er kr. 28.500.000
Allar nánari upplýsingar veitir Friðrik Þ. Stefánsson lögmaður og lgfs. í s. 616 1313 og fridrik@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 05/06/2024 | 66.000.000 kr. | 172.993.000 kr. | 215.4 m2 | 803.124 kr. | Nei |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
815 | 224,2 | 94,9 | ||
815 | 224,2 | 94,9 | ||
800 | 221,1 | 107,9 | ||
113 | 218,4 | 162 | ||
580 | 212,6 | 55 | ||
340 | 204,1 | 97,9 |