Miðvikudagur 25. nóvember
Fasteignaleitin
Opið hús:29. nóv. kl 13:30-14:00
Skráð 25. nóv. 2026

Ólafsgeisli 45

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarholt og Úlfarsárdalur-113
218.4 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
162.000.000 kr.
Fermetraverð
741.758 kr./m2
Fasteignamat
139.000.000 kr.
Brunabótamat
104.250.000 kr.
Mynd af Stefán Rafn Sigurmannsson
Stefán Rafn Sigurmannsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2004
Garður
Svalir
Pallur
Heitur pottur
Sturtuklefi
Sérinng.
Fasteignanúmer
2255487
Landnúmer
186840
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upphaflegar
Raflagnir
upphaflegar
Frárennslislagnir
Upphaflegt
Gluggar / Gler
Upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Ólafsgeisli 45 - Einstaklega vel staðsett raðhús með stórbrotnu útsýni!

Um er að ræða afar vel staðsett og glæsilegt raðhús á eftirsóttum stað í Grafarholtinu með stórkostlegu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og víðar. Eignin er skráð samtals 192,5 fm samkvæmt fasteignaskrá, þar af er íbúðarhluti 166,6 fm og bílskúr 25,9 fm, en samkvæmt teikningum eignarinnar er húsið skráð 218,4 fm og skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 185,2 og bílskúrinn 33,2 fm.

Skipulag eignarinnar er einstaklega gott og nýtist hver fermetri vel. Umhverfið er fjölskylduvænt og stutt er í leikskóla, grunnskóla, fjölbreyttar gönguleiðir og útivistarsvæði. Þá er Golfklúbbur Reykjavíkur í göngufæri frá eigninni.
Eign sem vert er að skoða fyrir þá sem leita að fallegu fjölskylduhúsi með miklu útsýni, góðu skipulagi og eftirsóttri staðsetningu.


Nánari lýsing:
Komið er inn í rúmgóða forstofu þar sem fallegur glerveggur skilur á glæsilegan hátt milli forstofu og alrýmis. Lausnin opnar sjónlínu inn í eignina og gerir það að verkum að birta og útsýni njóta sín um leið og gengið er inn. Gestasalerni er inn af forstofu. Alrými eignarinnar er bjart og glæsilegt með stórum gluggum sem hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn í rýmið. Þar sameinast stofa, borðstofa og opið eldhús á fallegan hátt. Eldhúsið er snyrtilegt með góðu skápaplássi, vinnuaðstöðu og stórri eyju sem myndar skemmtilega miðju rýmisins.
Frá stofu er útgengt út á rúmgóðar svalir sem snúa vel gagnvart sólu og bjóða upp á einstakt útsýni yfir borgina og nágrennið.
Á efri hæðinni er einnig herbergi með rennihurð sem nýtist vel sem svefnherbergi, sjónvarpsherbergi eða skrifstofa.
Fallegur stigi tengir saman hæðir eignarinnar. Á neðri hæðinni tekur við rúmgott opið rými með útgengi út í bakgarð. Þar eru í dag tvö góð svefnherbergi, en auðvelt er að bæta við þriðja herberginu ef þörf er á. Baðherbergið er flísalagt og búið fallegri innréttingu og rúmgóðri „walk-in“ sturtu. Þvottahús er með innréttingu og tengingum fyrir þvottavél og þurrkara. Þá er einnig rúmgott fataherbergi með góðu skápaplássi, einnig er stór góð geymsla á neðri hæðinni. Garðurinn er gróinn og viðhaldsléttur. Snyrtilegur sólpallur með heitum potti býður upp á notalega aðstöðu til útivistar og samverustunda. Aðkoma að húsinu er góð með hellulögðu bílaplani. Bílskúrinn er flísalagður og búinn bæði heitu og köldu vatni.


Nánari upplýsingar veitir: 
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tjarnarmói 8
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Tjarnarmói 8
Tjarnarmói 8
800 Selfoss
221,1 m2
Parhús
524
488 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnarmói 8
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Tjarnarmói 8
Tjarnarmói 8
800 Selfoss
221,1 m2
Raðhús
524
488 þ.kr./m2
107.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hafnarbraut 12
200 Kópavogur
201,2 m2
Fjölbýlishús
312
422 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Selvogsbraut 3 m skúr og gróðurhúsi
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:25. nóv. kl 17:45-18:15
Selvogsbraut 3 m skúr og gróðurhúsi
815 Þorlákshöfn
131,6 m2
Raðhús
312
607 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin