Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 og
Jason Kristinn fasteignasali sími 775 1515 - jason@betristofan.is kynnir: Glæsilega íbúð á 4. hæð, merkt nr. 410 við Heklureitinn. Laugavegur 168. Skráð samtals 143,3 fm og skiptist í 128,5 fm íbúð, með öllum þægindum sem hægt er að hugsa sér. Íbúðinni tilheyrir 14,8 fm sérgeymsla og stæði í bílageymslu.
Heimasíða verkefnisGlæsileg of rúmgóð íbúð með þakgarði sem er 58,4 fm, ásamt svölum til suðurs sem eru 4,3 fm. Gert er ráð fyrir heitum potti í þakgarðinum. Komið inní íbúð, gestasnyrting, 3 svefnherbegi eru í íbúðinni. Eldhús með eyju og tveimur útgöngum út í þakgarð. Glæsileg hjónasvíta með fataherbergi og baðherbergi með sturtu. Sér þvottahús. Gólfhiti er í íbúðinni. Geymslan og bílastæðið eru í kjallara.
Í eldhúsi verður eyja, borðplötur ásamt bakplötu úr Quarts steini, sérframleiddur frá Santamargherita á Ítalíu. Vönduð tæki frá Siemens, sem koma úr StudioLine gerðinni en hún býður uppá úrval glæsilegra tækja sem gera eldamennskuna sérlega þægilega og ánægjuríka. Öll tæki hvort sem er fyrir eldhús eða baðherbergi eru valin með tilliti til gæða og endingar.
Hafstudio og Studio Homestead koma að hönnun innréttinga og eru þær sérsmíðaðar af ítalska fyrirtækinu Cubo Design úr Miton línunni þeirra. Kaupendur hafa tækifæri til að velja mismunandi liti og áferðir fyrir innréttingar sem og flísar á baðherbergi, komi þeir tímanlega að borði.
Íbúðirnar á efri hæðum, hafa einstakt útsýni til fjalla og yfir borgina.
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds.
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga.
Örstutt er í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut.
Afhending miðast við september 2025
Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 - löggiltur fasteignasali - jason@betristofan.is
Guðbjörg Guðmundsdóttir s. 899 5533 - gudbjorg@betristofan.is löggiltur fasteignasali.