Haustakur 2 - GarðabæOpið hús fimmtudaginn 3.september frá kl 17:00-17:30
Vinsamlegast staðfestið komu á opna húsið á gudny@stofanfasteignir.isSTOFAN FASTEIGNASALA kynnir bjarta og fallega 4 herbergja íbúð í litlu fjölbýli við Haustakur 2, Garðabæ.
Eignin er skráð samtals 140,1 fm og er á 2.hæð með sérinngangi.- Sérinngangur
- 3 svefnherbergi
- Rúmgóðar svalir
- Fallegt útsýni
- Hleðslustöðvar við húsið
Komið er inn í flísalagða
forstofu með fataskápum.
Gangur / hol með parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Gengið er úr sofu á rúmgóðar
svalir (11,6 fm).
Eldhús er opið og bjart og samliggjandi með stofu, falleg innrétting og eyja, bakarofn í vinnuhæð, helluborð, háfur og tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum og parketi á gólfi.
Tvö herbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, góð innrétting, baðkar, sturta og upphengt salerni.
Þvottahús innan íbúðar með innréttingu, flísar á gólfi.
Sérgeymsla staðsett á jarðhæð sem er 17,1 fm.
Sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Hleðslustöðvar við húsið í sameign íbúa.
Þetta er björt og falleg eign vel staðsett í Akrahverfinu í Garðabæ. Stutt er í stofnæðar, skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.