Föstudagur 28. ágúst
Fasteignaleitin
Opið hús:30. ágúst kl 14:30-15:00
Skráð 19. nóv. 2025

Vorbraut 41 endaraðhús

Nýbygging • RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
228.3 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
229.000.000 kr.
Fermetraverð
1.003.066 kr./m2
Fasteignamat
122.000.000 kr.
Mynd af Sigurður Gunnlaugsson
Sigurður Gunnlaugsson
Fasteignasali
Byggt 2025
Garður
Svalir
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2530068
Landnúmer
236732
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignasalan TORG kynnir glæsileg og einstaklega vönduð raðhús við Vorbraut 41–51 í suðurhlíð Hnoðraholts í Garðabæ.
Um er að ræða sex raðhús á tveimur hæðum, hönnuð með birtu og stórbrotið útsýni að leiðarljósi. Húsin njóta einstakrar staðsetningar með víðáttumiklu útsýni yfir golfvöll GKG, Vífilsstaðavatn og náttúruparadísina Heiðmörk.
Húsin eru hönnuð af FORMER arkitektum og innanhússhönnun er í höndum M/STUDIO Reykjavík. Lögð hefur verið rík áhersla á tímalausan arkitektúr, fallegt samspil við náttúruna og vandað efnisval. Innigarðar, forgarðar og rúmgóðar svalir skapa einstakan karakter og sterka tengingu milli innri rýma og umhverfisins.
Húsin skilast fullfrágengin að utan og innan samkvæmt skilalýsingu, með vönduðum innréttingum frá Ballingslöv, glæsilegum eldhústækjum frá Siemens, fullbúnum baðherbergjum, innihurðum, skápum og gólfefnum í votrýmum og bílskúr. Áætluð afhending er haustið 2026.
Allar nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 863-8813 eða með tölvupósti á elka@fstorg.is.
Heimasíða verkefnisins: VORBRAUT.IS 

Nánari lýsing 
Við Vorbraut 41–51 rísa sex einstaklega glæsileg og vel skipulögð raðhús á tveimur hæðum. Húsin eru sérhönnuð fyrir þessa einstöku staðsetningu í suðurhlíð Hnoðraholts og skipulögð þannig að birta, sólarátt og útsýni fái notið sín sem best.
Stórir gluggar ramma inn útsýnið og hleypa ríkulegri dagsbirtu inn. Samspil innigarðs, forgarðs og svala skapar fallegt flæði milli húss og lóðar, auk þess sem staðsetning húsanna innan lóðanna tryggir gott næði og skjólgóða aðkomu.
Arkitektúr húsanna er tímalaus og fágaður. Útveggir eru að hluta málaðir og að hluta klæddir hitameðhöndluðu timbri. Húsin eru byggð úr vottuðum forsteyptum einingum frá BM Vallá og á þökum er vandað viðsnúið þakkerfi, frágengið með tveimur lögum af úthagatorfi. Gróðurþökin og náttúrulegt efnisval styrkja heildarsvip verkefnisins og tengingu þess við umhverfið.
Gluggar og svalahurðir eru úr timbri með álklæðningu að utan og sólvarnar- og einangrunargleri. Svalir eru með handriðum úr samlímdu öryggisgleri og álhandlista, þannig að útsýnið nýtur sín óhindrað.
Aðalinngangur er um skjólgóðan forgarð undir svölum. Útidyrahurð er vönduð stálhurð frá Hörmann með rafstýrðri læsingu og möguleika á appstýringu. Innfelld og timburklædd bílskúrshurð er einnig rafstýrð með möguleika á appstýringu.

Innanhússhönnun er í höndum M/STUDIO Reykjavík og efnisval fágað, hlýlegt og nútímalegt. Húsin skilast fullmáluð að innan og með vönduðum innréttingum og tækjum samkvæmt skilalýsingu en án megin gólfefna.
Eldhúsinnréttingar eru frá Ballingslöv, með framhliðum úr ekta viðarspóni í brúnbæsaðri eik, litnum Mocca. Pocket-rennihurðakerfi gefur eldhúsinu einstaklega fágað og heildstætt yfirbragð. Borðplötur eru úr Silver Root keramiki og eldhúsið búið vönduðum tækjum frá Siemens; bakaraofni og combi-ofni, spanhelluborði með innbyggðri viftu, kæli- og frystiskáp og innnyggðri uppþvottavél.
Borðstofuinnrétting er einnig frá Ballingslöv með brúnbæsuðum eikarframhliðum og Silver Root keramikplötum.
Baðherbergin eru tvö og skilast fullbúin með vönduðum innréttingum frá Ballingslöv, keramikborðplötum, baklýstum spegli eða speglaskáp, hringlaga vöskum og blöndunartækjum frá Scandtap. Salerni eru vegghengd og baðherbergin flísalögð með stórum 60 × 120 cm Florim-flísum. Á baðherbergi neðri hæðar er grátt sturtugler með svörtum prófílum.
Fataskápar eru í forstofu, hjónaherbergi og svefnherbergjum.  Í forstofu er glæsileg spónlögð rennihurð.
Sérhannaðar innréttingar eru jafnframt í þvottahúsi og vinnurými við bakinngang. Þvottahús skilast með innréttingu, borðplötu, stálvaski og vönduðum blöndunartækjum. 
Gólfhitakerfi er í öllum vistarverum og skilast það fullbúið með gólfhitastýringu. Bílskúr er hitaður með hefðbundnum vegghengdum ofni.
Gólfefni fylgja á báðum baðherbergjum og í þvottahúsi. Bílskúrsgólf skilast með dökku epoxy-yfirborði og kanti upp á veggi. Önnur gólf skilast tilbúin undir gólfefni að vali kaupanda.

Lóð skilast fullfrágengin að framanverðu. Hellulögn með snjóbræðslu er á forgarði, bílaplani og gangvegi að húsinu. Aukabílastæði skilast með grassteini og steinsteyptir skjólveggir og sorptunnuskýli skilast máluð.

Hnoðraholt er nýtt og vandað íbúðarhverfi með einstaka náttúrufegurð, góðum samgöngutengingum og víðáttumiklu útsýni. Stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu Garðabæjar.
Einstök útivistarsvæði eru í næsta nágrenni, þar á meðal Heiðmörk, Vífilsstaðavatn og golfvellir GKG. Fjölnota íþróttahúsið Miðgarður er einnig staðsett í hverfinu og býður upp á fjölbreytta íþrótta- og heilsutengda starfsemi.

Vorbraut 41–51 sameinar fyrsta flokks arkitektúr, glæsilega innanhússhönnun, stórbrotið útsýni og einstaka staðsetningu. Hér er um að ræða vönduð og nútímaleg fjölskylduheimili þar sem sérstaklega hefur verið hugað að birtu, rýmisnýtingu, efnisvali og tengingu við náttúruna.
Áætluð afhending er haustið 2026.


Heimasíða verkefnisins: VORBRAUT.IS 


Allar nánari upplýsingar veita: 
Elka Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 863-8813 eða með tölvupósti: elka@fstorg.is

Sigurður Gunnlausson, löggiltur fasteignasali, í síma 898-6106 eða með tölvupósti: sigurdur@fstorg.is 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 2025
26.2 m2
Fasteignanúmer
2530068
Byggingarefni
Forsteypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kjarrvegur 4
Bílskúr
Opið hús:01. sept. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Kjarrvegur 4
Kjarrvegur 4
108 Reykjavík
237.7 m2
Raðhús
714
694 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hleðslustöð
Opið hús:03. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hafnarbraut 12
Hafnarbraut 12
200 Kópavogur
96.4 m2
Fjölbýlishús
312
818 þ.kr./m2
78.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 3 íb.102
Bílastæði
Opið hús:30. ágúst kl 13:30-14:00
Vorbraut 3 íb.102
210 Garðabær
116.9 m2
Fjölbýlishús
312
897 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 3 íb. 202
Bílastæði
Opið hús:30. ágúst kl 13:30-14:00
Vorbraut 3 íb. 202
210 Garðabær
134.7 m2
Fjölbýlishús
312
853 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin