Atvinnueign kynnir til leigu: 180 fm verslunarrými á jarðhæð á Geirsgötu 2-4, í glæsilegu nútíma verslunar- og þjónusturými staðsett á kjarnasvæði í miðbæ Reykjavíkur, nánar tiltekið Hafnartorgi.
Um er að ræða 180 fm rými með möguleika á sérsniði eftir þörfum leigutaka. Inngangur er beggja megin við húsið. Staðsetningin tryggir gott aðgengi og sýnileika. Undir svæðinu alla leið að Hörpu er stærsti bílakjallari landsins sem fólk getur keyrt inn um á 3 mismunandi stöðum og gengið upp á mörgum stöðum, m.a. með lyftum og rúllustigum beint upp á göngugöturnar og verslunarsvæðin.
VSK bætist við leiguverð. Laust eftir samkomulagi. Byggingin er hluti af Hafnartorgssvæðinu en það hefur verið mikil uppbygging á svæðinu á síðustu árum. Hafnartorgssvæðið er nútímalegt borgarhverfi sem nær alveg frá Lækjartorgi og að Hörpu. Á svæðinu er blandað saman íbúðarhúsnæði, skrifstofum, hótelum, verslununum og þjónustu ásamt menningartengdri starfsemi.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ólafur Ingi Guðmundsson, löggiltur fasteignasali og leigumiðlari í síma
847-7700 eða
olafur@atvinnueign.isSigursteinn Stefánsson, Viðskiptafræðingur og Aðstoðarmaður Fasteignasala í síma
860 5415 eða
sigursteinn@atvinnueign.isÁ vefsíðu okkar getur þú fundið fleiri eignir sem og kynnt þér þjónustu Atvinnueigna ehf,
www.atvinnueign.is - Atvinnueignir eru okkar fag -