Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Mjög snyrtilegt og vel við haldið 5herb. 126,6fm einbýlishús ásamt 28,1fm bílskúr, samtals 154,7fm, innst í botnlangagötu í grónu hverfi á Selfossi.
Sérlega fallegur garður og frábær staðsetning.
Komið er inn í flísalagða forstofu með skáp fyrir yfirhafnir og forstofuherbergi þar á vinstri hönd með fataskáp og opið hurðagat inn í herbergið við hliðina.
Hurð úr forstofu inn í skála, hin herbergin og baðherbergið þar en sjónvarpshorn, stofa og eldhús á hægri hönd í vesturenda hússins.
Stofan björt og með uppteknu lofti og gengt út á stóran pall með skjólveggjum. Parket á gólfi hennar, skála, herbergjanna og sjónvarpshornsins.
Eldhúsið við hlið stofunnar, með dökkum innréttingum, vönduðum tækjum og borðkrók. Gott skápa- og borðpláss og flísar á gólfi.
Gengt úr eldhúsi fram í flísalagt þvottahús með stóru vinnuborði, dyrum út í garð og búri innaf.
Svefnherbergin eru fjögur, hjónaherbergið þeirra stærst og með stórum fataskáp.
Baðherbergið með flísum á gólfi og vel upp á veggi, baðkari og sturtu, klósetti og handlaug í innréttingu.
Bílskúrinn snyrtilegur með nýmáluðu gólfi, dálitlu geymslulofti, flekahurð að framan og göngudyrum bak við út í garð, - ekki innangengt úr húsinu.
Að utan er húsið klætt með standandi viðarklæðningu, gluggar og hurðir úr tré og bárujárn á þaki.
Skipt var um þak, rennur og þakkant, gler í gluggum og alla glugga í bílskúr árið 2018. Þá voru frárennslislagnir myndaðar eftir jarðskjálfta 2007 og voru í lagi.
Garðurinn er glæsilegur, með geymsluskúr og gróðurhúsi, margs konar blómum, runnum og trjám.
Mulningur í innkeyrslu og framan við húsið.
Virkilega eigulegt hús sem vert er að skoða.
--BÓKIÐ EINKASKOÐUN--
Nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali
s. 896 9565 - loftur@husfasteign.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.