Domus Fasteignasala á Norðurlandi vestra, kynnir til sölu glæsilegt tveggja hæða einbýlishús á Blönduósi. Urðarbraut 15
Húsið er skráð 164,4 fm auk 32,9 fm bílskúrs, samtals 197,3 fm. Í eigninni eru sex svefnherbergi, rúmgóður sólpallur með heitum potti og 910 fm lóð.
Seljendur eru opnir fyrir skiptum á einbýlishúsi, par eða raðhúsi á Akureyri.
Skipulag eignarinnar er eftirfarandi:
Á neðri hæð eru forstofa, hol, stofa, eldhús, baðherbergi, tvö svefnherbergi og þvottahús.
Á efri hæð er hol, fjögur herbergi og salerni (wc og vaskur).
Neðri hæð:
Forstofa er með flísum á gólfi, fatahengi og gólfhita.
Þvottahús er inn af forstofu, með flísalögðu gólfi, innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara, góðu skápaplássi og gólfhita. Þvottahúsið var endurnýjað og stækkað árið 2021.
Frá forstofu er komið inn í hol með hringstiga sem liggur upp á efri hæð, Hydro-cork á gólfi.
Stofa er staðsett til hægri, björt og rúmgóð með stórum gluggum og Hydro-cork á gólfi.
Eldhús er opið og bjart með innréttingu frá Stíganda, flísum á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél, viftu, borðkrók og korkgólfi.
Baðherbergi er flísalagt bæði í hólf og gólf, með IKEA innréttingu, handklæðaofni, sturtu og opnanlegum glugga. Þaðan er gengið út á sólpall með heitum potti.
Tvö svefnherbergi eru á hæðinni, bæði með harðparketi.
Efri hæð:
Hringstigi leiðir upp á efri hæð þar sem komið er í hol með stórum glugga.
Á hæðinni eru fjögur herbergi, þar af þrjú mjög rúmgóð. Fataskápar eru í þremur herbergjum og spónaparket á gólfum.
Salerni er með klósetti og vaski, ásamt þakglugga.
Veggir og loft eru klædd hvítmáluðum panil.
Lóð og útisvæði:
Garður er stór og sólpallur nær um helming hússins.
Bílskúr:
Bílskúr er með steyptu gólfi og gryfju, einangraður og klæddur að innan. Þar er gönguhurð að framan, rafdrifin innkeyrsluhurð og aðgengi af sólpalli aftan við húsið.
Búið er að endurnýja glugga í stofu, þvottahúsi, svefnherbergjum á neðri hæð og í bílskúr.
Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is
eða Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 stefano@pacta.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.