Mánudagur 17. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 17. ágúst 2026

Melhæð 5

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
321.4 m2
9 Herb.
6 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
249.500.000 kr.
Fermetraverð
776.291 kr./m2
Fasteignamat
198.250.000 kr.
Brunabótamat
147.550.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1992
Garður
Pallur
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2071842
Landnúmer
119284
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Málað 2026
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Nýtt á skrá! Melhæð 5 Garðabæ - Glæsilegt og sjarmerandi 5 svefnherbergja fjölskylduhús á 1066,0 fermetra lóð auk studioíbúðar í hluta bílskúrs.

Eignin er eingöngu sýnd í einkasýningum. Bókið skoðun hjá heimir@fastlind.is

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir glæsilegt 321,4 fermetra einbýlishús með aukaíbúð/studioíbúð í hluta af bílskúr á frábærum stað við Melhæð 5 í Garðabæ. Sjarmerandi stofa (setustofa og borðstofa) sem er um 80 fermetrar að stærð og með tæplega 8 metra lofthæð. Fallegar verandir sunnan- og vestan megin við húsið. Húsið stendur innst í afar snyrtilegri botnlangagötu. Lóðin, sem er 1066,0 fermetrar að stærð er fallega gróin og stendur húsið í miklu skjóli. Hellulögð bílastæði (rúmar fjórar bifreiðar) fyrir framan hús. Snjóbræðsla undir stétt að húsi og fyrir framan bílskúr. Góður geymsluskúr er staðsettur á baklóð hússins.

Nýlega er búið að mála húsið að innan sem utan. Einnig var þak yfirfarið og málaið árið 2026.

Aðalhæð skiptist í: Forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi (annað inn af hjónaherbergi), auka forstofu og þvottaherbergi. Innangengt í stóran bílskúr þar sem búið er að breyta u.þ.b. helming hans í studioíbúð með sérinngangi. Efri hæð skiptist í: Sjónvarpsstofu og tvö svefnherbergi.


Húsið er skráð í dag 256,0 birtir fermetrar en arkitekt er búinn að uppfæra skráningartöflu, sem er verið að senda á Garðabæ, þar sem húsið er skráð 321,4 fermetrar. 

Staðsetning hússins er frábær í rótgrónu hverfi þar sem stutt er í alla verslun og þjónustu, s.s. leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla, matvörubúðir og Smáralind í næsta nágrenni. 

Nánari lýsing:
Aðalhæð:

Forstofa: Er stór og björt, með flísum á gólfi og aukinni lofthæð. 
Gangur: Með parketi á gólfi. Gengið þaðan upp á efri hæð.
Setustofa: Er rúmgóð, með parketi á gólfi, mikilli lofthæð og gluggum til vesturs og norðurs. Setustofa er opin við borðstofu.
Borðstofa: Er rúmgóð, með parketi á gólfi, mikilli lofthæð og gluggum til suðurs og vesturs. Útgengi á verönd til vesturs frá stofum.
Eldhús: Með flísum á gólfi og eldhúsinnréttingu með miklu borð- og skápaplássi. Eldhúseyja og góður borðkrókur. Eldhús er bjart með gluggum til suðurs og útgengi á verönd til suðurs. Flísar á milli skápa, tvöfaldur kæliskápur, bakaraofn, örbylgjuofn, stórt helluborð og eldhúseyja. 
Baðherbergi I: Er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtutækjum, sturta, stór innrétting við vask, upphengt salerni og gluggar til norðurs.
Hjónaherbergi: Er stórt, með parketi á gólfi, aukinni lofthæð og skápum á heilan vegg. Innangengt í baðherbergi II og gluggar til norðurs.
Svefnherbergi II: Er stórt, með parketi á gólfi, aukinni lofthæð og gluggum til norðurs.
Svefnherbergi III: Er rúmgott, með parketi á gólfi og gluggum til suðurs/austurs.
Þvottaherbergi: Er stórt, með flísum á gólfi, mikill innréttingu með góðu skápa- og vinnuplássi. Vaskur, aukin lofthæð og útgengi á baklóð.
Efri hæð:
Sjónvarpsstofa: Með parketi á gólfi og þakgluggum.
Svefnherbergi IV: Með teppi á gólfi og gluggum til norðurs.
Svefnherbergi V: Með teppi á gólfi og gluggum til suðurs.

Bílskúr: Með stórri bílskúrshurð og innangengt frá forstofu. Aukin lofthæð. Upphitaður og heitt/kalt vatn.

Studioíbúð/aukaíbúð: Er staðsett fyrir innan bílskúr með sérinngangi (norðan megin). Harðparket á gólfi og gluggar til norðurs. Eldhús og baðherbergi með sturtu.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
11/12/2025173.700.000 kr.35.950.000 kr.256 m2140.429 kr.Nei
26/05/2025173.700.000 kr.166.000.000 kr.256 m2648.437 kr.Nei
31/08/200643.300.000 kr.63.000.000 kr.256 m2246.093 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1992
62.3 m2
Fasteignanúmer
2071842
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
24.950.000 kr.

Myndir (44)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Örvasalir 11
Opið hús:19. ágúst kl 17:00-17:45
IMG_9346.jpg
Skoða eignina Örvasalir 11
Örvasalir 11
201 Kópavogur
295.4 m2
Einbýlishús
724
877 þ.kr./m2
259.000.000 kr.
Skoða eignina Geirakot 1
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Geirakot 1
Geirakot 1
356 Snæfellsbær
292.1 m2
Einbýlishús
614
291 þ.kr./m2
85.000.000 kr.
Skoða eignina Keldugata 4
Bílskúr
Opið hús:17. ágúst kl 17:00-17:45
Skoða eignina Keldugata 4
Keldugata 4
210 Garðabær
224.4 m2
Raðhús
635
Fasteignamat 168.000.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Keldugata 6
Bílskúr
Opið hús:17. ágúst kl 17:00-17:45
Skoða eignina Keldugata 6
Keldugata 6
210 Garðabær
225.3 m2
Raðhús
724
Fasteignamat 163.350.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin