Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala
Flatasíða 3
Um er að ræða 6 herbergja einbýlishús á pöllum með sambyggðum bílskúr á flottum stað í Síðuhverfi. Húsið er að miklu leiti upprunalegt en býður upp á mjög skemmtilega möguleika eins og útleigueiningu.
Eignin skiptist í tvær forstofur á efri og neðri hæð, borðstofu, stofu, eldhús, búr, sjónvarpshol, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, geymslu og bílskúr.
Forstofa efri hæðar er með flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Sjónvarpshol er fyrir framan forstofu, þar er parket á gólfi og upptekið loft.
Borðstofa og stofa eru í opnu rými en arin skilur að rýmin. Úr borðstofu þar sem er parket á gólfi er gengið út á verönd til suðvesturs. Stofa er björt með flísar á gólfi og arinn snýr að stofu.
Eldhús er með parket á gólfi, eldhúskrókur, stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu sem er upprunaleg og bakaraofn er bæði í innréttingu og á vegg við búr. Sá ofn er óvirkur. Búr inn af eldhúsi nýtist vel.
Gengið er upp hálfa hæð á svefnherbergisgang.
Svefnherbergi eru fjögur, ýmist dúkur eða parket á gólfum, öll nokkuð rúmgóð og með góðu skápaplássi í hjónaherbergi.
Baðherbergi hæðarinnar er afar rúmgott, með flísar á gólfum og veggjum, panel í lofti, bæði sturtu og baðkari og góðri viðarinnréttingu með miklu skápaplássi.
Á jarðhæð er forstofa, þvottahús inn af forstofu með upprunalegri innréttingu, baðherbergi með sturtu, geymsla, hol og rúmgóður bílskúr sem er innangengur. Í bílksúr málað gólf, rafmagnsdrifin innkeyrsluhurð og tveir gluggar með opnanlegu fagi.
Vart hefur verið við leka í ákveðnum aðstæðum við þakkannt.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
berglind@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955