Fallegt hús á tveimur hæðum í nálægð við Fossvogsdalinn, snyrtileg lóð með miklum pöllum. Í húsinu eru sex svefnherbergi tvö baðherbergi og eitt gesta salerni, sér inngangur er á neðri hæð hússins og því auðvelt að breyta húsinu í tvær stórar sérhæðir. Eldhús var endurnýjað árið 2015 ásamt því að skipt var um gólfefni efri hæðar, baðherbergi efri hæðar var tekið í gegn árið 2023. Húsið var málað og múrviðgert árið 2023. Skipt var um þakpappa og sjóbærðslu í rennum árið 2021. Núverandi eigendur hafa átt húsið frá árinu 2001 og hafa passað það vel að halda eigninni vel við.Forstofa með flísum og skápum.
Gesta salerni er flísalagt í hólf og gólf.
Hol er rúmgott með parketi á gólfi, gluggar í lofti hleypa fallegri dagsbirtu inn í rýmiið.
Stofa með pareketi á gólfi.
Borstofa með parketi á gólfi, útgengið út á stórar svalir til austurs.
Eldhús, innrétting sérsmíðuð af Fagus, marmari á borði frá Rein, innfelldur vínkælir í eyju og annar vínkælir er innfelldur í tvöföldum ísskáp. Tveir ofnar í eldhúsi.
Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, stór sturta, endurnýjað árið 2023.
Herbergi með parketi, þetta herbergi er nýtt sem fataherbergi í dag.
Hjónasvíta er stór með parketi á gólfi, þetta rými er viðbygging frá árinu 2006, útgengt út á pall.
Neðri hæð:Stigi milli hæða er rúmur, einnig er sérinngangur á neðri hæðina.
Forstofa með flísum á gólfi.
Þvottahús er stórt með miklum skápum, dúkur á gólfi.
Geymsla er innaf þvottahúsi.
Opið alrými með parketi á gólfi. rennihurð út í garð gólfsíðir gluggar, tvær geymslur innaf alrými.
Baðherbergi með baðkari og sturtu, flísar á gólfi og veggjum.
Stórt herbergi með parketi, útgengt út í garð.
Herbegi er rúmgott með parketi.
Herbergi með parketi og er mjög rúmgott.
Herbergi með parketi.
Rafhleðslustöð fylgir með húsinu og það er snjóbærðsla í plani.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Þórir Hauksson Löggiltur fasteignasali í síma 696-1122 eða kristjan@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.