Sunnudagur 29. desember
Fasteignaleitin
Skráð 5. nóv. 2024
Deila eign
Deila

Logafold 32

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
353.7 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
200.000.000 kr.
Fermetraverð
565.451 kr./m2
Fasteignamat
170.300.000 kr.
Brunabótamat
100.750.000 kr.
Mynd af Árni Helgason
Árni Helgason
Löggiltur Fasteignasali
Byggt 1985
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Útsýni
Sérinng.
Fasteignanúmer
2042742
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Endurnýjað 2008
Raflagnir
Endurnýjað 2008
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Endurnýjað 2008
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
suðursvalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Þak er upprunalegt. Leðurflísar á gólfi blómaskála þarfnast athugunar. Tréverk í blómaskála þarf að athuga.
Domusnova hefur fengið í einkasölu glæsilegt einbýlis hús á frábærum stað við Logafold í Reykjavík. Stór garður með heitum potti, pöllum og verönd umlykja húsið. Frábært útsýni af svölum yfir voginn. Húsið var allt meira og minna endunýjað árið 2008, þar á meðal lagnir, gólfefni, arinn og sett var rafstýrð lýsing og gardínur í efri hæðina. Húsið er nú með þremur herbergjum en einfalt er að gera tvö herbergi úr einu og vera þannig með 4 svefnherbergi. Húsið er samtals 353,7fm. Húsinu hefur verið vel við haldið og var allt timburverk málað 2023, þak er upprunalegt. Fasteignamat 2025 er 177.650.000kr.

Bókið skoðun hjá arni@domusnova.is eða í síma 6634290. 


Þegar komið er að húsinu er upphitað bílastæði vestan hússins sem rúmar tvo bíla og bílskúr með rafmagnshurðaopnara rúmar þriðja bílinn. Á hægri hönd er pallur sem snýr á móti kvöldsólinni. Þegar komið er inní forstofu er alrými til hægri með niðurlímdu parketi á gólfi, gengið útá svalir til suðurs með útsýni yfir voginn og suður og austur um. Af alrýminu er opið í blómaskála á neðri hæð. Rafmagnsstýringar eru á ljósum og gardínum á hæðinni. Gengið er inn gang þar sem stórt baðherbergi er á vinstri hönd og stigi á neðri hæðina, innst í ganginum er stórt svefnherbergi með sérinngang á baðherbergið og mjög gott fataherbergi innan við svefnherbergið. Á neðri hæð er gott herbergi að austan, stór blómaskáli og sjónvarpshol í miðrými, stórt herbergi að sunnan en þar hefur tveimur herbergjum verið breytt í eitt stórt og einfalt er að breyta því þannig að tvö herbergi verði þar. Einnig er geymsla, baðherbergi og vinnuherbergi (án glugga) á neðri hæðinni. Útgengi í garðinn er úr blómaskála og er þar heitur pottur, harðviðarpallar austan, sunnan og vestan megin húss. Mikil veðursæld er í skjólsælum garðinum og er þar næturlýsing.

Nánari  lýsing: 
Alrými stofu og eldhúss er með niðurlímdu viðarparketi, hnotu, sem er frá 2008. Í rýminu er fallegur gasarinn,  útgengi á svlir sem snúa á móti suðri og opnar til austurs. Eldhús er með innréttingu frá Söndeborg kökken í Danmörku. Gólfhiti er í kringum eyju en á henni er granít toppur og spanhelluborð sem er nýlegt. Granít toppur á innréttingu að öðru leyti. Tvöfaldur ísskápur fylgir (klakavél virkar ekki) ásamt vínkæli, og tveimur hitaskúffum auk kaffivélar og örbygjuofns en þessi  tæki eru flest nýleg.
Baðherbergi er með leðurflísum, á gólfi, handklæðaofni og hita í gólfi, næturlýsing, góð innrétting, rýmið var endurnýjað að öllu leyti 2008. Næturlýsing við glervegg sem skilur stofu frá blómaskála.
Svefnherbergi er með næturlýsingu, sama parketi og stofa og gangur að herbergi, en þar er næturlýsing, stórt fataherbergi innaf herberginu og hægt að fara beint inná baðherbergi úr svefnherbergi án þess að fara fram á gang. 
Á forstofu eru leðurflísaar og er innangengt í bískúr úr forstofu, ar er góður fataskápur.
Fallegur tréstigi er á milli hæðanna hannaður af Halldóri Gíslasyni arkitekt.
Á gólfum niðri er gegnheilt parket, hlynur, í alrými, gangi og herbergjum. Leðurflísar í blómaskála og flísar á baðherbergi og þvottahúsi.
Blómaskáli með leðurflísum er syðst og austast í rýminu, útgengt á verönd og garð,  mikil lofthæð í rýminu þar sem gólfplata efri hæðar nær ekki yfir þennan hluta.
Sjónvarpshol og miðrými er með gegnheilu parketi.
Herbergi, með parketi og fataskápum,  sem nú er eitt stórt rými var áður tvö herbergi skipt með skápum sem eru í rýminu og auðvelt að breyta til baka.
Herbergi, með parketi (skráð geymsla á teikningu).
Vinnuherbergi með parket á gólfi, gluggalaust (skráð geymsla á teikningu).
Geymsla með parketi á gólfi, þar eru lausar járnhillur.
Þvottahús með góðri vinnuaðstöðu, flísar á gólfi.
Bílskúr er rúmgóður og er rafmagnshurðaopnari, flísar  á  gólfi.
Húsið er timburhús (efri hæð) byggt úr einingum frá Húsasmiðjunni og klætt utan með sérinnfluttum múrsteini frá Þýskalandi. Neðri hæð er staðsteypt. Gluggar utan blómaskála eru oregon pine en þar eru plastgluggar, skipt hefur verið um gler þar sem þurfti. Gervihnattadiskur á austurhlið hússins fylgir.
Garðurinn er stór og gróinn með harðviðarpalli við útgengi úr blómaskála, pallur með heitum potti og skjólvegg austan megin, pallur með skjólvegg vestan megin hvar kvöldsólin fagurt skín.
Fallegar gönguleiðir meðfram voginum eru rétt neðan við húsið og er einnig fuglaskoðunarkofar sem eru opnir almenningi til að fylgjast með ríkulegu fuglalífi við voginn. Stutt er í skóla, leikskóla, leikvöll, sundlaug, íþróttaaðstððu og aðra þjónustu í hverfinu. 

Smellið hér til að fá söluyfirlit strax og fleiri upplýsingar

Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1985
36 m2
Fasteignanúmer
2042742
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.650.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
GötuheitiPóstnr.m2Verð
112
364
184
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2024 - Fasteignaleitin