Fannagil 26 - Rúmgóð og falleg 6 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum með sambyggðum bílskúr í Giljahverfi. Heildarstærð er 197,6 m² en þar af telur bílskúrinn 24,9 m²
Vönduð og vel um gengin eign á vinsælum stað í bænum. - 4 góð svefnherbergi og möguleiki á að útbúa það fimmta úr sjónvarpsstofu - Frábært útsýni - Gólfhiti í öllum rýmum - Snjóbræðsla í bílaplani - Gott geymsluloft yfir allri íbúðinni.
Eignin skiptist með eftirfarandi hætti: Efri hæð: Forstofa, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr Neðri hæð: Sjónvarpsstofa, baðherbergi, tvö svefnherbergi, hol, þvottahús og geymsla.
Efri hæð: Forstofa er með flísum á gólfi og góðu skápaplássi. Eldhús er með mahony innréttingu og ljósum flísum á gólfi. Stæði fyrir ísskáp er í innréttingu. Uppþvottavél er innfelld í innréttingu og fylgir með við sölu. Úr eldhúsi er gengið út á góðan sólpall sem snýr til vesturs. Stofa er rúmgóð, með flísum á gólfi og innfelldri lýsingu. Skemmtilegt útsýni er úr stofuglugganum. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með hornbaðkari og góðri mahony innréttingu. Upphengt wc, handklæðaofn og opnanlegur gluggi er á baði. Hjónaherbergi er rúmgott, með góðu skápaplássi og plastparketi á gólfi. Barnaherbergi er með plastparketi á gólfi og fataskáp. Bílskúr er með flísum á gólfi og hillum á veggjum. Þar er tengi fyrir þvottavél. Sér inngönguhurð er við hliðina á innkeyrsluhurðinni. Geymsluloft er yfir allri íbúðinni og eru lúgur upp á geymsluloftið bæði úr bílskúrnum og úr barnaherbergi efri hæðar.
Neðri hæð: Tvö svefnherbergi eru á neðri hæðinni, bæði mjög rúmgóð, með ljósu plastparketi á gólfi og fataskápum. Sjónvarpsstofa er með plastparketi á gólfi. Úr þessu rými væri hægt að útbúa fimmta svefnherbergið. Baðherbergi er flísalagt og með góðri ljósri innréttingu. Stór flísalögð sturta og upphengt wc. Hol er með plastparketi á gólfi. Af holi er hurð inn í geymslu undir stiga. Þvottahús er með flísum á gólfi. Ljós innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Úr þvottahúsi er útgengt út á baklóð.
Annað: - Húsið var málað að utan 2018 - Snyrtileg og vel umgengin eign - Ljósleiðari - Innfelld lýsing í alrými á efri hæð.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Baðkar er gamalt Sprunga er í gólfflís í forstofu. Smá skemmd í bílskúrshurð Eignin er ekki í fullu samræmi við upprunalegar teikningar
** Eignin er seld með fyrirvara **

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.