Sunnudagur 2. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 2. ágúst 2026

Sæland 4

EinbýlishúsNorðurland/Grenivík-610
136.1 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
660.544 kr./m2
Brunabótamat
58.800.000 kr.
Byggt 1963
Pallur
Heitur pottur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
21610871
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Tveir inngangar

Esja Fasteignasala og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna einstaka og algjörlega endurnýjaða eign í einkasölu - laust við kaupsamning. Bókið skoðun.
Sæland 4 öðru nafni Sæborg er einstaklega fallegt einbýlishús sem stendur á frábærum útsýnisstað við Eyjafjörðinn.
Húsið hefur nánast algerlega verið endurnýjað á undanförnum árum, m.a. þakefni, gluggar, endureinangrað, pússað og málað auk þess sem allar lagnir, og innviðir hafa veri endurnýjað á glæsilegan máta. Húsið skiptist í; 2 svefnherbergi, svefnloft, stóra og opna stofu, opið eldhús og borðrými, forstofurými / stofu auk kjallara með skemmtilegu baðrými með útgengi út á hellulagða verönd og þvottahús. Útigeymsla og góð aðstaða og aðkoma.
Nánari lýsing;  Komið er inn í nýlega endurbyggða viðbyggingu sem er nú opið rými/forstofa með frábæru útsýni út á sjó og opinni tengingu við alrými hússins.
Á aðalhæðini er opið og bjart eldhús með góðri borðaðstöðu.
Stofan er opin og björt enda gluggar á tvo vegu og upptekin loft, frábært og óhindrað útsýni er út á sjó en húsið er staðsett nánast beint á móts við Hrísey og skemmtilegu sjónarhorni þangað.
Svefherbergi eru tvö á hæðinni.
Baðherbergi er rúmgott og glæsilega endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, upphengdu salerni og stórum sturtuklefa og breiðu niðurfalli. Gluggi er opnanlegur.
Skemmtilegt svefnloft er yfir herbergjum og baðherbergi - það opnast út að stofunni og nýtur sömuleiðis útsýnis mót n-vestri.
Kjallari undir aðalhæðinni hefur verið algerlega endurnýjaður og býður upp á ýmsa möguleika í nýtingu, þar er salerni og baðkar, svefnrými, þvottahús og hurð út á hellulagða verönd með heitum potti.
Útisvæði er einstaklega snyrtilegt, þar er hellulögð verönd mót vestri meðfram sjávarhlið hússins, hlaðnir skjólveggir og heitur pottur sem býður upp á "Infinity" útsýni út á sjóinn með óhindruðu útsýni út fjörðinn og grasilagður garður umhverfis húsið.
Nýr og veglegur geymsluskúr er á steyptu plani við húsið, hann er ca  (ca 14,9 fm) og  er hentugur fyrir sleða, fjórhjól, Buggy bíl eða hvert annað áhugamál. 
Innfelld lýsing er bæði er í þakkanti hússins og á lóðinni sem setur glæsilegan og stílhreinan svip á þetta fallega hús sem er nær algerlega endurbyggt.
Nánari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir s. 777-2882  thora@esjafasteignasala.is
 


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Esja fasteignasala
www.esjafasteignasala.is

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Altaona golf
Bílastæði
Á einni hæð
SPÁNAREIGNIR - Altaona golf
Spánn - Annað
144 m2
Einbýlishús
322
447 þ.kr./m2
64.300.000 kr.
Skoða eignina Hólmatún 9
Bílskúr
Heitur pottur
e
Skoða eignina Hólmatún 9
Hólmatún 9
225 Garðabær
160.4 m2
Raðhús
513
810 þ.kr./m2
129.990.000 kr.
Skoða eignina Ólafsvegur 30
Efsta hæð
Skoða eignina Ólafsvegur 30
Ólafsvegur 30
625 Ólafsfjörður
114.3 m2
Fjölbýlishús
514
262 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjuvegur 17
Skoða eignina Kirkjuvegur 17
Kirkjuvegur 17
625 Ólafsfjörður
76.8 m2
Einbýlishús
312
389 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin