Lind fasteignasala kynnir stóra 3ja herbergja íbúð á 3.hæð á draumastað í miðbæ Reykjavíkur, Endurnýjuð að hluta. Fallegar innréttingar úr hnotu. Aukin lofthæð og hærri hurðar, sér bílastæði í lokuðum bílakjallara. Sameiginleg gestabílastæði fyrir aftan hús, garður með leiktækjum og yfirbyggðar svalir. Engin þrep né tröppur til að komast inn í eignina. Einungis tvær íbúðir eru á hæðinni. Nýtt parket er á allri eigninni.Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, tvö herbergi, baðherbergi, þvottaskáp og geymslu. Auk sér bílastæðis í bílakjallara.
Árið 2026 var endurnýjað* Allt gólfefni eignar nema á baðherbergi, endurnýjað með 14mm gæða harðparketi frá Birgisson
* Borðplata og eldhúsborð í eldhúsi endurnýjað, 39mm frá Fanntófell
* Nýr niðurfelldur vaskur og blöndunartæki frá Grohe
* Öll eignin máluð í ljosum lit.
Nánari lýsing: Forstofa með fataskáp og parketi á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum úr hnotu, bakaraofn í vinnuhæð frá Smeg og nýleg uppþvottavél. Gas helluborð frá Smeg og háfur. Parket er á gólfi.
Stofan er mjög rúmgóð, björt og opin inn í eldhús. Parket á gólfi. Gengið er út á yfirbyggðar svalir frá stofu sem snúa í suður.
Svefnherbergin er tvö með fataskáp í öðru þeirra og parketi á gólfi.
Baðherbergið er með innréttingu undir og við handlaug úr hnotu, sér baðkari og sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni, opnanlegum glugga og flísum á gólfi og veggjum.
Djúpur þvottaskápur er innan íbúðar með aðstöðu fyrir þvottavél og barkalausan þurrkara.
Sérgeymsla með hillum 7,6fm
Bílastæði fylgir eign og er í lokuðu bílastæðahúsi.
Gestabílastæði eru milli húsa fyrir íbúa og gesti þeirra.
Hjóla- og vagnageymsla: sameiginleg á jarðhæð.
Húsið er einangrað að utan og klætt með flísum og hefur fengið reglulegt viðhald.
Húsvörður er í húsinu sem tryggir að reglulegu viðhaldi sé sinnt, sameign sé snyrtileg og annað tilfallandi.
Séð er um öll þrif og umhirðu í sameignlegum garði
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá 9 samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak og Dorma. Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er í iðandi mannlíf, veitingahús, afþreyingu, verslanir og þjónustu.
Grunnteikning sem er í auglýsingu eignar hefur verið breytt til að kaupandi geti áttað sig á skipulagi eignar. Breytingin er að þvottahús var lokað af.
Nánar upplýsingar hjá Guðrún Antonsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6212020, tölvupóstur gudrun@fastlind.is. Helga Pálsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8222123, tölvupóstur helga@fastlind.is.