GARÐATORG EIGNAMIÐLUN kynnir til sölu fallegt og vel skipulagt raðhús á pöllum á þessum vinsæla og eftirsótta stað í Garðabæ. Þetta er vandað og reisulegt hús með einstöku útsýni yfir Urriðavatn. Möguleiki er á 3-5 svefnherbergjum og 2-3 baðherbergjum/snyrtingum.Bókið skoðun: Unnur s:8660507 eða unnur@gardatorg.isInnra skipulag: anddyri, eldhús og borðstofa, rúmgóð stofa, 3–5 svefnherbergi, 2-3 baðherbergi/snyrtingar, þvottahús, geymslurými og innbyggður bílskúr.
Komið er inn í
rúmgóða forstofu. Þar er herbergi og snyrting.
Eldhús og borðstofa eru á sama palli í opnu, björtu og fallegu rými. Einstaklega falleg eldhúsinnrétting með góðu vinnu- og skápaplássi, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, ofni í vinnuhæð, örbylgjuofni og eldhúsviftu í helluborði. Flest allt Miele-tæki frá Eirvík.
Stofan er falleg og stór með mikilli lofthæð sem gefur rýminu einstakan svip. Fallegir gluggar og gengið út um rennihurð á rúmgóðar suðursvalir með glæsilegu útsýni.
Stórt
svefnherbergi með sér baðherbergi er á efsta pallinum. Þar er möguleiki á að hafa tvö herbergi.
Á jarðhæð er svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Rúmgóður
bílskúr og geymslurými þar sem er innangengt í íbúðarhúsnæði.
*Vandaðar ítalskar innréttingar í eldhúsi, baðherbergjum, fataskápum og þvottahúsi frá Scavolini-Regola.*Gólfefni og flísar eru frá MOOD INTERIORS.*Tæki frá Eirvík.Góð aðkoma er að húsinu, búið er að helluleggja bílaplan fyrir framan bílskúr og gert er ráð fyrir hitalögnum. Húsið er byggt á pöllum sem skapar opið og skemmtilegt skipulag með góðri tengingu milli rýma. Samverurýmin eru björt og rúmgóð með stórum gluggum sem snúa vel við sólu og bjóða upp á fallegt útsýni. Gólfhiti er í íbúðarrými og tvívirkt loftræstikerfi sem er innsteypt í loftplötur með inn- og útloftun. Þak er steypt að hluta og að hluta úr timbursperrum. Húsið er skráð 225,3fm, þar af 195,3fm íbúðarrými og 30fm innbyggður bílskúr. Auk þess er um 14 fm geymslurými við hlið bílskúrs sem ekki telst með í skráðri fermetratölu. Innangengt er úr bílskúr um þetta rými.Urriðaholt er rólegt, eftirsótt og fjölskylduvænt hverfi í Garðabæ þar sem náttúra og mannlíf fara vel saman. Göngufæri er í Urriðaskóla, leikskóla, útivistarsvæði, golfvöll og náttúruperlur á borð við Urriðavatn og Heiðmörk. Urriðaholt er fyrsta hverfi landsins sem hlotið hefur vistvottun samkvæmt BREEAM Communities.
Eignin er nánast fullbúin og verið er að leggja lokahönd á framkvæmdir innan- og utanhúss. Hér er um að ræða eign þar sem mikið fæst fyrir verðið. Þegar horft er til stærðar, gæða, frágangs og staðsetningar er erfitt að finna sambærilega eign á höfuðborgarsvæðinu. Sjón er sannarlega sögu ríkari.
**Skipti á annarri eign koma til greina.**Nokkrar myndir eru af sambærilegu fullbúnu húsi þar sem húsgögn voru sett inn á nokkrar myndir með aðstoð gervigreindar. Þetta er gert til að aðstoða áhugasama kaupendur við að sjá fyrir sér möguleika sem húsnæðið býður upp á.
Nánari upplýsingar veita:Unnur Ýr Jónsdóttir, löggiltur fasteignasali, s: 8660507 eða unnur@gardatorg.is
Sigurður Tyrfingsson, löggiltur fasteignasali og húsasmíðameistari, s: 898 3708 eða sigurdur@gardatorg.is Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því Garðatorg eignamiðlun skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð