Mánudagur 10. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 10. ágúst 2026

Fannafold 136

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
207.9 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.900.000 kr.
Fermetraverð
672.920 kr./m2
Fasteignamat
137.050.000 kr.
Brunabótamat
112.600.000 kr.
Mynd af Svanþór Einarsson
Svanþór Einarsson
Byggt 1988
Garður
Pallur
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2041629
Landnúmer
110046
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Síðan húsið var byggt
Raflagnir
Síðan húsið var byggt
Frárennslislagnir
Síðan húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Timburverönd
Upphitun
Sérhiti
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Inngönguhurð í bílskúr er orðin lúin. Komin er móða í gler í svalahurð. Það sér á borðplötu í eldhúsi.
Kvöð / kvaðir
Afsal 411-A-022236/1989
Lóðarleigusamningur 411-A-007238/1989.1 1368 FM LEIGULÓÐ TIL 75 ÁRA FRÁ 1/1 89 - KVAÐIR UM BÍLAST, OG ALM.UM LAGNIR BORGARSJ. OG SKILM. BORGARVERKFR.- ÓHEIMILT ER AÐ SELJA BÍLSK. EÐA AUKABYGG. FRÁ VIÐK. ÍBÚÐARH.
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Laust strax - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Bjart og vel skipulagt 207,9 m2 raðhús á pöllum með innbyggðum bílskúr við Fannafold 136 í Grafarvogi. Eignin er skráð 207,9 m2, þar af íbúðarrými 181,4 og bílskúr 26,5. Mikil lofthæð og fallegur garður með timburverönd til vesturs. Steypt bílaplan með snjóbræðslu. Húsið er nýmálað að utan. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, vinnuherbergi, eldhús með borðkrók, stofu, borðstofu, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús, forstofu, geymslu og bílskúr. Vinsæl staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Grafarvogi. Stutt í skóla, sundlaug, verslun og alla helstu þjónustu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Eignin getur verið laus til afhendingar við kaupsamning.

Skv. upplýsingum frá seljanda var: Þak var endurnýjað, settir nýir þakgluggar og nýtt parket á stofu og borðstofu fyrir um 1 ári síðan. Planið var tekið í gegn og steypt 2024 og þá voru inntakslagnir fyrir neysluvatn endurnýjaðar og snjóbræðslu komið fyrir. Gler á framhlið hússins endurnýjað og útidyrahurð endurnýjuð fyrir um 5 árum síðan. Bílskúrshurð var endurnýjuð fyrir um 10 árum síðan. Húsið er nýmálað að utan.

Nánari lýsing:
Neðsti pallur:

Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp með rennihurðum.
Gestasnyrting er með flísum á gólfi, salerni og handlaug. Opnanlegur gluggi er í rýminu. 
Hol er með flísum á gólfi.
Eldhús er inn af holi, með flísum á gólfi, U-laga innréttingu og góðum borðkrók. Bakaraofn, helluborð og háfur.  Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Flísar milli efri og neðri skápa. Útgengt á stétt framan við hús úr eldhúsi. 
Þvottahús er inn af holi með vinnuborði og vaski. 
Geymsla er inn af þvottahúsi með hillum.
Bílskúr er með hillum, rennandi vatni, rafdrifnum bílskúrshurðaopnara og hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl. Innangengt er í bílskúrinn úr íbúðarrýminu um þvottahús.

Milli pallur:
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi og flísum í kringum arininn. Fallegur arinn og mikil lofthæð sem gerir rýmið bjart og skemmtilegt. Útgengt er út á timburverönd og bakgarð í vesturátt.

Efsti pallur:
Svefnherbergisgangur er með kork á gólfi.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með málað gólf.
Svefnherbergi nr. 2 er með kork á gólfi, fataskáp og stiga upp á milliloft sem hefur verið nýtt sem leiksvæði eða svefnaðstaða. Mikil lofthæð.
Svefnherbergi nr. 3 er með kork á gólfi, fataskáp og stiga upp á milliloft sem hefur verið nýtt sem leiksvæði eða svefnaðstaða.. Mikil lofthæð.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, innréttingu, handlaug, salerni, sturtu og baðkari. Opnanlegur gluggi er í rýminu.
Vinnuherbergi er með kork á gólfi, fataskáp og tveimur þakgluggum. 

Verð kr. 139.900.000,-
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (42)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álakvísl 96
Opið hús:13. ágúst kl 18:00-18:30
Skoða eignina Álakvísl 96
Álakvísl 96
110 Reykjavík
74 m2
Fjölbýlishús
211
864 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2-4 íb201
Bílastæði
Hleðslustöð
Opið hús:13. ágúst kl 17:00-17:30
Vetrarbraut 2-4 íb201
210 Garðabær
221 m2
Fjölbýlishús
312
497 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 17 (106)
Breiðhöfði 17 (106)
110 Reykjavík
89.7 m2
Fjölbýlishús
211
1002 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 19 (309)
Breiðhöfði 19 (309)
110 Reykjavík
63.5 m2
Fjölbýlishús
211
1069 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin