Föstudagur 17. október
Fasteignaleitin
Skráð 16. okt. 2025
Deila eign
Deila

Árskógar 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
108.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
89.900.000 kr.
Fermetraverð
827.047 kr./m2
Fasteignamat
74.250.000 kr.
Brunabótamat
58.640.000 kr.
SK
Sigríður Kjartansdóttir
Byggt 1992
Lyfta
Bílastæði
Fasteignanúmer
2053895
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
13
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Lóðarréttindi
Leigulóð
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir mjög fallega, rúmgóða og vel skipulagða 108,7 fermetra 4ra herbergja íbúð á 4. hæð ásamt stæði í upphitaðri bílageymslu og sérgeymslu í þessu eftirsótta húsi fyrir eldri borgara við Árskóga 6 í Reykjavík. Samkvæmt fasteignayfirliti er íbúðin 104,5 fermetrar og geymslan 4,2 fermetrar.

Nýlega er búið að endurnýja öll gler í gluggum og alla ofna íbúðar. Einnig var heitavatnsinntakið ásamt vatnsgrind endurnýjað á síðasta ári.

Mynddyrasímakerfi og neyðarhnappakerfi er í húsinu. Tvær lyftur eru í húsinu nr. 6 og íbúðin getur verið laus til afhendingar við kaupsamnin
g.

Boðið er upp á mikla þjónustu í húsinu. Velferðarsvið Reykjavíkurborgar er með félagsstarf í húsinu í salarkynnum, sem innangengt er í á opnunartíma. Einnig er fótaaðgerða og hárgreiðslustofa starfrækt þar. Sameiginlegur matsalur er á jarðhæð og þar er boðið upp á heitan mat í hádeginu. Sameiginlegur veislusalur er í tengibyggingu milli Árskóga 6 og 8 á jarðhæð og sameiginleg salarkynni fyrir félagsstarf.  Lóðin er fullfrágengin með nægum bílastæðum, rafhleðslustöðvum og góðri aðkomu. Auk þess er púttvöllur á lóð hússins.  Íbúðin er ætluð fyrir 60 ára og eldri, sem eru félagsmenn í Félagi eldri borgara. Húsvörður er i byggingunni.

Lýsing eignar:

Inngangur, sameiginlegur, snyrtilegur og rúmgóður, með flísum á gólfi og rafhurðaopnun.
Forstofa/hol, parketlagt og rúmgott með fataskápum upp í loft.
Herbergi l, parketlagt með gólfsíðum gluggum og opið við hol. 
Herbergi ll, parketlagt og með fataskápum. Fallegur útbyggður gluggi er í herbergi.
Hjónaherbergi, parketlagt með fataskápum á heilum vegg.
Baðherbergi, dúklagt með flísalögðum veggjum, flísalagðri gólfsturt með setustól, innréttingu, skáp og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa / borðstofa, rúmgóð, parketlögð og björt með gluggum í tvær áttir og útgengið er á svalir sem eru með svalalokun.
Eldhús, opið við borðstofu/stofu parketlagt og með hvítum + viðarinnréttingum með flísum á milli skápa, uppþvottavél, ískápur, og ofn nýlegur í vinnuhæð.

Húsið, lítur vel út, er gott viðhald á því. Sameiginleg bílastæði eru á lóð við húsið og búið að setja upp rafhleðslustöðvar.

Í kjallara hússins er:

Sér geymsla, 4,2 fermetrar með máluðu gólfi og hillum. 
Sér bílastæði í lokaðri og upphitaðri bílageymslu merkt númer 17.

Staðsetning eignarinnar er góð í nálægð við helstu þjónustu, verslanir og heilsugæslu í Mjódd ásamt fallegum gönguleiðum.  

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1992
Fasteignanúmer
2053895
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
7
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.140.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vífilsgata 3
Skoða eignina Vífilsgata 3
Vífilsgata 3
105 Reykjavík
102.9 m2
Fjölbýlishús
422
841 þ.kr./m2
86.500.000 kr.
Skoða eignina Skólavörðustígur 26a
Skólavörðustígur 26a
101 Reykjavík
94.2 m2
Einbýlishús
322
933 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Skoða eignina Naustabryggja 20
Bílastæði
Skoða eignina Naustabryggja 20
Naustabryggja 20
110 Reykjavík
124.6 m2
Fjölbýlishús
312
697 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Barðastaðir 11
Bílastæði
Skoða eignina Barðastaðir 11
Barðastaðir 11
112 Reykjavík
119.4 m2
Fjölbýlishús
413
736 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin