Þriðjudagur 21. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 24. sept. 2025

Skólavörðustígur 26A

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
94.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
79.000.000 kr.
Fermetraverð
838.641 kr./m2
Fasteignamat
95.900.000 kr.
Brunabótamat
47.650.000 kr.
GT
Guðmundur Th. Jónsson
Lögg. fasteiganasali
Byggt 1913
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2005976
Landnúmer
101763
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar
Raflagnir
Endurnýjaðar
Frárennslislagnir
Endurnýjað innan hússins
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Nýlegt þakjárn
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Engar svalir
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu mjög fallegt 94,2 fermetra einbýlishús á þremur hæðum, kjallara, hæð og ris, á frábærum stað við Skólavörðustíg í Reykjavík. 

Aukin lofthæð er á miðhæð hússins og full lofthæð er í kjallara, en rishæð er nokkuð undir súð og er ekki skráð inn í fermetrastærð eignarinnar.

Eignin er skráð 94,2 fermetrar að stærð skv. Fasteignaskrá Íslands, en þar vantar inn um 10 fermetra í risi hússins og stærð viðbyggingar sem er um 20 fermetrar.  Heildarstærð eignarinnar er því um 125 fermetrar.

Eignin hefur verið þó nokkuð endurnýjuð á sl. 15 - 20 árum:
- Neysluvatnslagnir
- Ofnalagnir og flestir ofnar
- Raflagnir og rafmagnstafla
- Gler og gluggar
- Þakjárn, þakpappi, þakrennur og niðurföll.

Lýsing eignar:

1. hæð hússins er 46,3 fermetrar að stærð og skiptist þannig:
Forstofa, dúklögð og með fatahengi.
Hol, dúklagt og þaðan er hringstigi niður í kjallara.
Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, innrétting og sturtuklefi.
Hol 2, dúklagt og þaðan er stigi upp á risloft.
Herbergi, dúklagt og rúmgott.

Rishæð, sem gengið er upp á um viðarstiga úr holi neðri hæðar og er ekki mæld inn í stærð hússins, skiptist þannig:
Stigapallur, dúklagður og með veltiglugga yfir. Súðargeymsla er inn af stigapalli.
Herbergi, rúmgott, dúklagt með gaflglugga og fataskápum. Súðargeymsla er inn af herbergi.

Kjallari hússins, sem er 47,9 fermetrar að stærð, er bæði með sérinngangi auk þess sem innangengt er í hann úr holi 1. hæðar, skiptist þannig:
Gangur, korklagður.
Þvottaherbergi, rúmgott og með glugga.
Eldhús, korklagt og með hvítum innréttingum og borðaðstöðu.
Stofa, korklögð og rúmgóð með gluggum inn í garðinn.
Forstofa, korklögð.

Viðbygging, með sérinngangi af lóð, skiptist þannig:
Forstofa, lakkað gólf.
Baðherbergi, stórt og með glugga, lakkað gólf og tengi fyrir þvotttavél.

Húsið að utan lítur vel út og þakjárn, þakpappi, niðurföll og þakrennur hafa nýlega verið endurnýjuð. Gler og gluggar voru endurnýjuð fyrir um 20 árum síðan og líta vel út.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á eftirsóttum stað í hjarta miðborgarinnar þaðan sem stutt er verslun, þjónustu, veitingahús o.fl. 

Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Njálsgata 22
Heitur pottur
Skoða eignina Njálsgata 22
Njálsgata 22
101 Reykjavík
93.8 m2
Raðhús
412
958 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Smiðjustígur 12
Smiðjustígur 12
101 Reykjavík
104.4 m2
Einbýlishús
312
Fasteignamat 99.400.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Seilugrandi 8
Bílskúr
Opið hús:22. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Seilugrandi 8
Seilugrandi 8
107 Reykjavík
87.1 m2
Fjölbýlishús
211
729 þ.kr./m2
63.500.000 kr.
Skoða eignina Bólstaðarhlíð 31
Bólstaðarhlíð 31
105 Reykjavík
89.3 m2
Fjölbýlishús
513
1108 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin