Þriðjudagur 18. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 18. ágúst 2026

Boðagrandi 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
98.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
863.683 kr./m2
Brunabótamat
52.960.000 kr.
Byggt 1981
Svalir
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20250312
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN & INGIBJÖRG LGF. OG FÉLAGSMAÐUR Í FÉLAGI FASTEIGNASALA  KYNNA:
Í einkasölu 4ra. herb.töluvert endurnýjaða enda íbúð á efstu hæð við Boðagranda í vesturbæ Reykjavíkur. Gluggar á þrem hliðum, tvennar svalir eru á íbúðinni og virkilega fallegt útsýni. Stæði í bílageymslu. Göngufæri við verslanir, skóla og helstu þjónustu bæði við Eiðistorg og Granda.

Birt stærð samkv. HMS 90,4 fm íbúð og 7,9 fm. geymslu. Birt stærð séreignar er 98,3 fm.

Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Ingibjörg lögg.fasteignasali s. 897-6717 eða inga@landmark.is

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT

✅ Björt og mjög rúmgóð íbúð.
✅ Fallegt útsýni út á sjóinn.
✅ Tvennar svalir.
✅ Stæði í bílakjallara.
✅ Stutt í helstu þjónustu.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, sér geymslu og stæði í lokuðum bílakjallara. 

Forstofa: Flísar á gólfi og innbyggður fataskápur.
Hjónaherbergi: Parketlagt með eldri fataskápum og útgengi út á svalir með fallegu útsýni út yfir sjóinn. 
Barnaherbergi I: Parketlagt með fataskáp.
Barnaherbergi Il: Parketlagt með fataskáp.
Stofa/borðstofa: Er flísalögð með útgengi út á svalir. Búið er að stúka af hluta stofu og gera vinnurými en hægt að breyta aftur í upprunalegt horf. 
Eldhús: Ljós viðar innrétting á tveim veggjum, flísalagt á milli skápa, flísar á gólfi og tengi fyrir uppþvottavél. Borðstofa í framhaldi af eldhúsi.
Baðherbergi: Flísalagt, baðkar með sturtuhaus. Endurnýjuð innrétting, gluggi og tengi er fyrir þvottavél og þurkara.
Geymsla: Sér geymsla er á jarðhæð (7,9 fm.) ásamt hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. 
Bílastæði: í bílakjallara merkt B31. Bílakjallari er sameiginlegur með Boðagranda 1,3,5,og 7. Gengið er niður í hann eftir rampi á bílaplani. 
Innihurðar og parket á herbergjum endurnýjað 2026.

Viðhald á húsi undanfarin ár samkvæmt seljanda:
2017 - Gluggar og gler yfirfarið í húsinu og skipt um það sem þurfti ásamt svalahurðum.
Gengið var frá rafmagnstengingu fyrir hleðslustöðvar við hvert stæði í bílakjallara. 
2025 - Bílaplan malbikað og málað 2026 
2026 - Á að mála húsið að utan í sumar ef veður leyfir (seljandi greiðir fyrir þann kostnað samkvæmt samþykktu tilboði)

Virkilega björt og fín íbúð með miklu útsýni á frábærum stað með stæði í bílakjallara. Stutt í helstu þjónustu og skóla.  Fallegar göngu og hjólaleiðir í nágrenninu og meðfram sjávarsíðunni.

Húsgjöld eignar eru samtals  kr. 34.039.- á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélaga, framkvæmdarsjóður,rekstur á bílakjallara, allur hiti, rafmagn í sameign.

-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Ingibjörg Agnes Jónsdóttir lögg.fasteignasali gsm: 897-6717  eða inga@landmark.is
 

Landmark fasteignamiðlun  og Heimili fasteignasala eru að sameinast – ný fasteignasala tekur til starfa í haust. Með samruna verður til fasteignasala sem býr yfir breiðari þekkingu, mikilli reynslu, sterkum innviðum og getu til að mæta síbreytilegum þörfum markaðarins. 

Um skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN
http://www.landmark.is

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Njálsgata 80
Skoða eignina Njálsgata 80
Njálsgata 80
101 Reykjavík
106.2 m2
Fjölbýlishús
323
894 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Brávallagata 20
Skoða eignina Brávallagata 20
Brávallagata 20
101 Reykjavík
84 m2
Fjölbýlishús
312
904 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Grettisgata 79
3D Sýn
Opið hús:20. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Grettisgata 79
Grettisgata 79
101 Reykjavík
83.7 m2
Fjölbýlishús
523
955 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Bragagata 32
Skoða eignina Bragagata 32
Bragagata 32
101 Reykjavík
105.2 m2
Fjölbýlishús
523
884 þ.kr./m2
93.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin