Fasteignasalan Byggð 464-9955
Krókeyrarnöf 10
** Seljendur skoða skipti á eign á Akureyri eða í Reykjavík - allt að 90 mkr. **
Mjög vel skipulagt og fallegt fimm herbergja einbýlishús á einni hæð ásamt sambyggðum bílskúr, sannkallað fjölskylduhús. Góð steypt verönd með heitum potti snýr til vesturs og gott steypt bílaplan austan og framan við húsið. Eignin er skráð samtals 246,2 fm. að stærð þar af er bílskúr 46 fm.
Eignin skiptist í forstofu, snyrtingu, gang, eldhús, stofu, baðherbergi, fjögur svefnherbergi (eitt af þeim skráð sem geymsla á teikningum), þvottahús og bílskúr. Geymsluloft er yfir hluta bílskúrs.
Forstofa er með spónlögðum eikar skápum og flísum gólfi.
Snyrting er inn af forstofu með flísum á gólfum, innréttingu við vask, upphengdu wc og opnanlegum glugga.
Gangur er með flísum gólfi, næturlýsingu og innfelldri lýsingu í loftum.
Eldhús, vönduð sérsmíðuð spónlögð eikar innrétting og eyja með mjög góðu skápa- og bekkjarplássi. Dökkur steinn er á bekkjum og flísar á milli skápa. Stæði er innréttingu fyrir amerískan ísskáp og uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð. Siemens tæki. Lítið búr er inn af eldhús.
Stofa með flísum á gólfi og stórum gólfsíðum gluggum til tveggja átta. Aukin lofthæð er í stofunni og innfelld lýsing í loftum. Fallegur arinn er á vegg milli eldhúss og stofu. Rennihurð er úr stofunni út á steypta verönd.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með parketi á gólfi og sérsmíðuðum spónlögðum eikar fataskápum. Eitt herbergið er skráð sem geymsla á teikningu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf og með innfelldri lýsingu í lofti. Spónlögð eikar innrétting með mjög góðu skápaplássi, upphengt wc, handklæðaofn, baðkar og rúmgóð sturta með innfelldum tækjum. Útgengt er út af baðherberginu út á verönd með heitum potti.
Þvottahús er með spónlagðri eikar innréttingu með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og skolvaska. Útgengt er í þvottahúsinu til norðurs á steypta stétt þar sem eru þvottasnúrur, einnig er innangengt úr þvottahúsi í bílskúrinn.
Bílskúr er mjög rúmgóður og er þar breið rafdrifinni innkeyrsluhurð og einnig sér inngönguhurð. Flísar eru á gólfi og vönduð lýsing í loftum, 3ja fasa tenglar eru í bílskúrnum. Geymsluloft er yfir hluta bílskúrs og er lofthæðin þar 1,42 m. Ein talía mun fylgja með við sölu eignar til að hífa dót upp á geymsluloftið. Fyrir framan er steypt bílaplan með hitalögnum í að stærstum hluta, lokað kerfi.
Steypt stétt/plan er með norðurhlið hússins og að þvottahúsi.
Annað:
- Laus til afhendingar 1. maí 2027
- Húsið var málað að utan sumarið 2024.
- Steypt þak.
- Hvítir plast gluggar eru í húsinu.
- Þjófa- og brunavarnarkerfi.
- Allar innréttingar eru spónlagðar með eik og smíðaðar af trésmiðjunni Ölri.
- Hiti er í gólfum.
- Innfelld lýsing er í helstu rýmum og aukin lofthæð.
- Steypt stétt er hringinn í kringum húsið og steypt verönd með steyptum skjólveggjum og heitum potti er á baklóðinni.
- Falleg og vel hirt lóð með fjölbreyttum trágróðri meðal annars eplatré.
- Hitalagnir eru í stærstum hluta af bílaplani, í hluta af stétt við forstofu og gönguleið frá baðherbergi og að heitum potti.
- Mjög vel skipulögð og fjölskylduvæn eign á rólegum stað.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is
olafur@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955