LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu mikið endurnýjað og einstaklega vel skipulagt einbýlishús á pöllum með stakstæðum bílskúr og auka íbúðareiningu við Faxatún 9 í Garðabæ. Um er að ræða fallega fjölskyldueign á eftirsóttum stað sem býður upp á rúmgóð og björt rými, gróinn og skjólgóðan suðurgarð með timburverönd, heitum potti og fjölbreytta nýtingarmöguleika með rúmgóðri auka íbúðareiningu með sérinngangi. Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, þjónustu og fallegar gönguleiðir.
Birt stærð eignarinnar er 238,3 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er bílskúr 32,8 fm.
Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu í opnu rými, sjónvarpshol, eldhús, fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús, geymslu og innbyggðan bílskúr. Auk þess er um 43 fm auka íbúðareining með sérinngangi sem skiptist í stofu og eldhús í opnu rými, svefnherbergi og baðherbergi.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT - Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is
Nánari lýsing
Forstofa með fataskáp, harðparket á gólfi.
Sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Eldhús með fallegri innréttingu, góðu skápaplássi og vönduðum tækjum, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með arni og útgengi á skjólgóða timburverönd til suðurs, parket á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi I með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi II með fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi III með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með innréttingu, rúmgóðri walkin sturtu og flísum á gólfi.
Þvottahús með innréttingu og skolvaski, epoxy á gólfi.
Baðherbergi II með sturtu og innréttingu, epoxy á gólfi.
Geymsla með epoxy á gólfi.
Bílskúr með heitu og köldu vatni, skolvaski, geymslulofti að hluta og rafdrifinni bílskúrshurð.
Auka íbúðareining
Forstofa með sérinngangi.
Stofa og eldhús í opnu rými með nýlega endurnýjaðri eldhúsinnréttingu og gólfefnum.
Svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð og vel við haldið í gegnum árin. Aðalíbúðin hefur fengið endurnýjað eldhús, baðherbergi, innihurðir og gegnheilt parket auk þess sem gler í gluggum og ofnar hafa verið endurnýjuð. Raflagnir hafa verið endurnýjaðar og eignin fengið reglulegt viðhald bæði innan- og utandyra.
Auka íbúðareiningin hefur einnig verið endurnýjuð með nýlegu eldhúsi, baðherbergi og gólfefnum.
Lóðin er gróin og einstaklega skjólsæl með fallegum gróðri og rúmgóðri timburverönd til suðurs. Þar er heitur pottur og góð aðstaða til útiveru og samveru fjölskyldunnar. Bílaplan er hellulagt að hluta með snjóbræðslu í plani og gönguleið að húsinu.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is
Á heimasíðunni minni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.