Fasteignasalan Byggð l 464-9955 - Einkasala
Geirþrúðarhagi 8b - 202
**Seld með fyrirvara**
Mjög vel skipulögð og björt 4-5 herb. íbúð á efri hæð í fjórbýli í Hagahverfi. Eignin er skráð 105,5 fm að stærð með tveimur merktum bílastæðum og hjóla- og vagnageymslu í sameignarrými. Fallegt útsýni er úr eigninni, sérstaklega um stóra stofuglugga til suðurs. Forstofa er með flísar á gólfi og fataskáp.
Geymsla sem mögulegt er að nýta sem svefnherbergi er við hlið forstofu. Þar er parket á gólfi og gluggi með opnanlegu fagi. Í dag eru þar hillur sem fylgja.
Eldhús er með parket á gólfi, með mjög góðri L-eldhúsinnréttingu með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og dökkum flísum milli efri og neðri skápa. Útgengt er úr eldhlúsi á svalir til norðvesturs þaðan sem er gott útsýni.
Stofa er björt með parket á gólfi og þaðan er glæsilegt útsýni til suðurs.
Baðherbergi er með gráar flísar á gólfi og veggjum, mjög góð innrétting í kringum vask og um þvottavél og þurrkara. Salerni er vegghengt og sturtuveggir eru aðfellanlegir.
Svefnherbergi eru þrjú öll með parket á gólfi og öll með fataskápum.
Annað:-Hiti í tröppum og steyptri stétt fyrir framan hús.
-Allur spónn á innréttingum og innihurðum er eik.
-Gólfhiti í allri íbúðinni
-Svalir aðgengilegar úr eldhúsi.
-Tvö merkt bílastæði fylgja hverri íbúð auk gestastæða.
-Möguleiki á hleðslustaur, fordæmi fyrir því að húsfélag taki einhvern þátt í kostnaði á uppsetningu, en eigendur sjá sjálfir um kaup á hleðslustöð.
-Gæludýr leyfð
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.000 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Frekari upplýsingar:olafur@byggd.is
greta@byggd.is
bjorn@byggd.is
berglind@byggd.is
Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:
464 9955