Dagbjartur Willardsson og Arna Rut Þorleifsdóttir löggiltir fasteignasalar og RE/MAX kynna, Stangarholt 36, Reykjavík - íbúð 0101 fnr. 201-1865 - Mikið endurnýjaða hæð með aukaíbúð. Birt stærð er 119,4 fm. Byggingarár hússins er 1951. FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.3D - SKOÐAÐU HÚSIÐ Í ÞRÍVÍDDARUPPTÖKU HÉR - 3DLýsing íbúðar á 1. hæð: Gengið er inn á hæðina um sameiginlegan inngang með einni annari íbúð sem er á 2. hæð hússins. Íbúðin samanstendur af litlu holi, hjónaherbergi, baðherbergi, barnaherbergi, eldhúsi, stofu og stiga sem liggur niður í aukaíbúð, núverandi eigendur hafa útfært geymslu aðstöðu við neðri enda stigans en auðvelt er að fjarlægja hana og sameina íbúðirnar aftur. Góðar suðursvalir. Þá hafa núverandi eigendur sett tengi fyrir þvottavél í geymslu undir stiga í sameign.
Lýsing aukaíbúðar í kjallara: Gengið er inn um sameiginlegan inngang í kjallara. Íbúðin sem er skráð á sama fastanúmer og íbúð 1. hæðar samanstendur af eldhúsi, baðherbergi, stofu og svefnherbergi. Þá er lítill geymsluskápur undir stiga.
Nánari lýsing íbúðar á 1. hæð.Gott hjónaherbergi með stórum fataskáp.
Barnaherbergi með fataskáp (var áður eldhús).
Baðherbergi með glugga og viftu, baðkar, flísalagt með flísum frá Ebson.
Tvær stofur og er eldhús inni í annarri stofunni, endurnýjuð falleg eldhúsinnétting frá Kvik með stórri eyju. Stór hurð með síðum glugga út á suðursvalir. Sjarmerandi eldri pottofnar í stofum sem tengdir voru að nýju 2023.
Geymsla undir stiga þar sem tengi er fyrir þvottavél, í sameign er einnig skápur.
Sameiginleg köld geymsla undir úti tröppum.Gluggar eru á þrjá vegu í íbúðinni sem hafa allir verið endurnýjaðir á síðustu árum. Vegna legu á húsinu í enda götunnar er garðurinn gróinn og óvenju stór, þá er gott útsýni að Háteigskirkju og birtan mikil inni í íbúðinni. Sameiginlegt malarplan með 2. hæð hefur verið útbúið á þessu ári með innkeyrslu frá Nóatúni.
2023 var íbúðin flotuð og vínyl parket lagt á íbúðinni í síldarbeinsmunstri að undanskildu baðherbergi sem var flísalagt. Þá var sett svart rafmagnsefni og svört blöndunartæki.
Nánari lýsing aukaíbúð í kjallara: Eldhús með glugga og gólfflísum. Stofa og innan af stofunni er flísalagt sturtubaðherbergi með glugga. Svefnherbergi með skáp.
Vínyl parket í sama lit og á efrihæð sem var lagt á gólfið í byrjun árs 2024. Íbúðin er hálf niðurgrafin en góðum gluggum og birta ágæt. Gluggar hafa verið nýlega endurnýjaðir.
Vel staðsett eign á eftirsóttum stað í Holtunum. Aukaíbúð með mögulegum leigutekjum. Mikið endurnýjuð eign. Bílskúrsréttur að fengnu byggingarleyfi og samþykktum. Allar nánari upplýsingar veitir:Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s:
861-7507 eða á
daddi@remax.is- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.