Margrét Rós lgf. og Fasteignasalan TORG kynna í sölu bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi við Engihjalla 17 í Kópavogi. Um er að ræða fallega eign með góðu útsýni og einstaklega rúmgóðum austursvölum sem ná eftir endilangri íbúðinni. Eignin skiptist í forstofu/hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og rúmgóða stofu og borðstofu. Eigninni fylgir sérgeymsla í kjallara og er sameiginlegt þvottahús á hæðinni. Góð staðsetning miðsvæðis þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og stofnbrautir. Matvöruverslun er í næsta nágrenni og skóli og leikskóli í nokkurra mínútna göngufjarlægð. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós Löggiltur fasteignasali, í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is *** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** Birt stærð eignarinnar samkvæmt fasteignaskrá HMS er 78,1 m² - og eru allir innan íbúðar. Sérgeymsla í kjallara sem tilheyrir eigninni, er ekki talin með í skráðum fermetrum íbúðar.* Björt og vel skipulögð 3ja herbergja, 78,1 m² íbúð með sér geymslu í kjallara.
* Einstaklega rúmgóðar austursvalir sem ná eftir endilangri íbúðinni.
* Sameiginlegt þvottahús er á hæðinni með sér tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
FÁÐU FRÍTT VERÐMAT Á ÞÍNA EIGN HÉRNánari lýsing:Anddyri/hol: Opið og rúmgott hol tengir saman öll rými í íbúðinni. Fataskápur og parket á gólfi.
Eldhús: Hálf opið á tvo vegu, með flísum á gólfi. Hvít innrétting með góðu skápaplássi og tengi fyrir uppþvottavél. Gert ráð fyrir borðkrók við glugga.
Stofa og borðstofa: Samliggjandi í björtu og rúmgóðu alrými með parketi á gólfi. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar austursvalir sem ná eftir endilangri íbúðinni.
Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskápum og parket á gólfi. Útgengið á svalir einnig frá hjónaherbergi.
Barnaherbergi: Með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu við handlaug, baðkari með sturtuaðstöðu og handklæðaofni.
Geymsla: Sérgeymsla fylgir íbúðinni í kjallara hússins. Geymslan er ekki skráð í birta fermetratölu eignarinnar.
Þvottahús: Sameiginlegt með tveimur öðrum íbúðum, staðsett á hæðinni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara fyrir hverja íbúð.
Sameign: Snyrtileg sameign með lyftu. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
Staðsetning: Eignin er á góðum og rótgrónum stað í Kópavogi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og stofnbrautir. Matvöruverslun er í næsta nágrenni og skóli og leikskóli í nokkurra mínútna göngufjarlægð. Næg bílastæði.
Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.
856-5858 /
margret@fstorg.is Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s. 773-3532 / adalsteinn@fstorg.is
KÍKTU Í HEIMSÓKN TIL MÍN Á FACEBOOK
VILTU VITA HVAÐ VIÐSKIPTAVINIR OKKAR HAFA SEGJA? SMELLTU HÉRUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.