Fimmtudagur 26. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 26. nóv. 2026

Stigahlíð 20

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
83 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
70.900.000 kr.
Fermetraverð
854.217 kr./m2
Brunabótamat
41.300.000 kr.
Byggt 1959
4. hæð
Svalir
Baðkar
Hleðslustöð
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20309991
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

HÖFÐI FASTEIGNASALA KYNNIR – STIGAHLÍÐ 20, 105 REYKJAVÍK.

Falleg, björt og vel skipulögð 3ja herbergja, 83,0 fm íbúð á fjórðu hæð hússins, með svölum og rúmgóðri sérgeymslu við Stigahlíð í Reykjavík. Um er að ræða mikið endurnýjaða eign á vinsælum og eftirsóttum stað í Hlíðunum. Umfangsmiklar viðhaldsframkvæmdir hafa farið fram á húsinu á undanförnum árum. Samkvæmt skráningu HMS er íbúðin 75,2 fm og sérgeymsla 7,8 fm, samtals 83,0 fm.


Lýsing: Forstofa með fatahengi. Hol með harðparketi á gólfi, opið að stofu, borðstofu og eldhúsi. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með harðparketi á gólfi. Frá borðstofu er gengið út á svalir. Eldhús með fallegri innréttingu frá árinu 2020, viftu, keramikhelluborði, harðparketi á gólfi og innbyggðri uppþvottavél. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskáp frá árinu 2026. Svefnherbergi með harðparketi á gólfi. Baðherbergi með flísalögðu gólfi og gólfhita, baðkari með sturtuaðstöðu, flísum á veggjum umhverfis baðkar, innréttingu, vegghengdu salerni, glugga, handklæðaofni og tengi fyrir þvottavél.

Í mjög snyrtilegri sameign hússins er rúmgóð 7,8 fm sérgeymsla með glugga, sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla. Leiktæki eru í sameiginlegum garði hússins.

Endurbætur innan íbúðar: 2026 – Nýr fataskápur í hjónaherbergi. – 2021 – Skipt um innihurðir. – 2020 – Ný eldhúsinnrétting. – 2018 – Skipt um alla glugga íbúðarinnar og svalahurð. – 2016 – Nýir rafmagnsvírar dregnir í lagnir, tenglar og rafmagnstöflur endurnýjuð og sértafla sett upp fyrir eldhús og þvottavél. Skipt um öll gólfefni íbúðarinnar.

Viðhald og endurbætur hússins: Vel hefur verið hugað að viðhaldi hússins í gegnum árin, bæði innan sameignar og utanhúss. 2026 – Rafhleðslustöðvar settar upp. – 2025 – Umfangsmiklar utanhússframkvæmdir, m.a. gluggaskipti þar sem þörf var á, múrviðgerðir, viðgerðir á svölum og uppsetning handriða. – 2022 – Stigagangur málaður og teppalagður. – 2020 – Eldvarnarhurðir settar í íbúðir í stigaganginum. – 2018 – Múrviðgerðir og gluggaskipti í samræmi við ástandsskýrslu Verksýnar frá árinu 2016. – 2017 – Stétt fyrir framan húsið endurnýjuð, snjóbræðslulögn lögð og leiktæki sett upp í garði. – 2016 – Frárennslislagnir endurnýjaðar og dren lagt meðfram húsinu. – 2007 – Þakjárn endurnýjað.

Eignin er einstaklega vel staðsett miðsvæðis í Reykjavík, þar sem stutt er í alla helstu verslun og þjónustu, skóla og almenningssamgöngur. Kringlan er í næsta nágrenni og Menntaskólinn við Hamrahlíð og Verzlunarskóli Íslands eru í göngufæri. Þá er stutt í fallegar göngu- og útivistarleiðir í Öskjuhlíð sem og miðborg Reykjavíkur. Falleg og mikið endurnýjuð eign í vel viðhöldnu húsi á eftirsóttum stað í Hlíðunum.

Frekari upplýsingar veitir: 
Kristinn Tómasson Viðskiptafr. MBA
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
Gsm. 820-6797, kristinn@hofdi.is 


 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Höfði Fasteignasala
http://www.hofdi.is

Myndir (24)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Efstaleiti 11
Bílastæði
Skoða eignina Efstaleiti 11
Efstaleiti 11
103 Reykjavík
100,3 m2
Fjölbýlishús
312
886 þ.kr./m2
88.900.000 kr.
Skoða eignina Rauðalækur 45
Kjallaraíbúð
Opið hús:29. nóv. kl 12:00-12:30
mx8a5749.jpg
Skoða eignina Rauðalækur 45
Rauðalækur 45
105 Reykjavík
81 m2
Fjölbýlishús
313
838 þ.kr./m2
67.900.000 kr.
Skoða eignina Æsufell 2
Skoða eignina Æsufell 2
Æsufell 2
111 Reykjavík
58,9 m2
Fjölbýlishús
211
798 þ.kr./m2
47.000.000 kr.
Skoða eignina Bjarkarholt 17 (405)
Bílastæði
Bjarkarholt 17 (405)
270 Mosfellsbær
92,9 m2
Fjölbýlishús
312
914 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin